***DOMUSNOVA KYNNIR * FULLINNRÉTTUÐ SKRIFSTOFUHÆÐ/KENNSLURÝMI***
ATHUGIÐ * VERÐ PR. FM. AÐEINS KR. 161.431,-
Möguleiki á yfirtöku á hagstæðu langtímaláni sem gerir kaupin auðveldariLAUST STRAX, Faxafen 10, 2.hæð, samtals um 2.292fm. mjög vel innréttuð skrifstofuhæð sem var nýtt sem skólahúsnæði og skiptist upp í 10 sjálfstæð mis-stór fastanúmer. Stigagangar í hvorum enda fyrir sig sem nýtast húsnæðinu. Í öðru stigahúsinu er sér-útbúnaður fyrir fatlaða (lyfta).
Húsnæðið er vandlega innréttað í m.a. 15 stórar skólastofur auk þess sem mjög stórt opið rými er í miðju húsnæðisins með skylite (ofanljós) sem hleypir mikilli birtu niður í rýmið.
Til beggja enda húsnæðisins hafa verið innréttaðar m.a. eldhús, salerni og nokkrar skrifstofur auk efra lofts sem nýtist vel fyrir starfsfólk o.fl.
Auk ofangreindra eignarhluta eru óskráð miðrými húsnæðisins. Alls telst húsnæðið því vera 2.292fm.
Í húsnæðinu er fullfrágengið sprinkler kerfi.
Allir innveggir eru léttir timburveggir eða álprófíl veggir sem auðvelt er að breyta og innrétta á annan hátt.
Loftræstikerfi er í húsnæðinu og víða rafknúnir opnanlegir gluggar.
Á gólfum eru að mestu leyti linoleon dúkar.
Lóðin sem er malbikuð er leigulóð. Heildarstærð lóðar er 5.394 fm.
Allir eignarhlutar hússins hafa sér rafmagnsmæli og einn mælir er fyrir sameign og greiða eigendur af honum í eignarhlutföllum eigna sinna.
Einn mælir er fyrir hita og greiðir hver fyrir sig í réttu hlutfalli við rúmmál sinnar eignar í húsinu.
Nánari upplýsingar veita:Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Agnar Agnarsson löggiltur fasteignasali / s.8201002 / agnar@domusnova.is
Um skoðunarskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlufall af fasteignamati. Stimilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.000,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.