Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna, Trönudal 1, í Innri-Njarðvík í Reykjanesbæ íbúð 0202 fnr. 250-2224Íbúðin er skráð hjá þjóðskrá 90,4fm og eru í dag þrjú svefnherbergi en eitt þeirra er skráð sem geymsla en er með glugga og nýtist sem svefnherbergi. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla. Skráð byggingarár hússins er 2018 og er húsið trveggja hæða fjölbýli og er íbúðin á efri hæð hússins. Hægt er að fara yfir íbúðina hér að neðan í þrívíddarhlekk og svo er gólfteikning sem sýnir fyrirkomulag íbúðar þar sem ljósmyndir af eigninni eru. Falleg eign sem vert er að skoða. Eignin er í göngufæri við hinn vinsæla Stapaskóla, opinn fótboltavöllur er fyrir framan húsið og falleg útivistarsvæði í kring. Byggingaraðili hússins er Byggingarfélagið Sparri sem er vandaður verktaki sem hefur byggt á svæðinu í áratugi. FÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.3D - SKOÐAÐU HÚSIÐ Í ÞRÍVÍDDARUPPTÖKU HÉR - 3DNánari lýsing:Aðkoma: Malbikuð bílastæði fyrir framan húsið.
Forstofa: Gráar flísar á gólfi, góður hvítur fataskápur.
Stofa: Parket á gólfi, útgengt á mjög rúmgóðar svalir sem snúa til vesturs.
Eldhús: Hvít innrétting frá HTH, gert er ráð fyrir einföldum ísskáp og uppþvottavél í innréttingu Flísalagt á milli efri og neðri skápa. Rúmgóður borðkrókur
Svefnherbergi: Eru þrjú en minnsta herbergið er skráð sem geymsla. Hvitir fataskápar eru í tveimur stærri herbergjunum. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Gráar flísar á gólfi, upphengt salerni. Góð hvít innrétting með handlaug, gengið er beint inn í góða sturtu.
Þvottahús: Gráar flísar á gólfi, hvít innrétting fyrir bæði þvottavél og þurrkara, vinnuborð og skápaveggur.
Trönudalur 1 er einstaklega falleg og vel skipulögð íbúð. Gólfefni og flísar eru frá Birgisson. Þak og þakrennur eru af gerðinni Gördík sem er norsk gæðavara og eru úr hvítlökkuðu áli. Þakkkantur er úr hvítu 2mm áli, veggir eru hraunaðir að utan og málaðir sem tryggir góða endingu og lítið viðhald. Gluggar og hurðir eru frá Velfac. Álið á undanverður VELFAC gluggum er raflakkað og þvi sem næst viðhaldsfrítt. Granit vatnsbretti eru undir gluggum.Allar nánari upplýsingar veitir:Dagbjartur Willardsson lgf hjá RE/MAX í s:
861-7507 eða á
daddi@remax.is- Ég býð upp á frítt söluverðmat á þinni eign og veiti góða og lipra þjónustu. -Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.