Fasteignaleitin
Skráð 20. nóv. 2026

Klængsbúð 20

RaðhúsSuðurland/Þorlákshöfn-815
121.5 m2
3 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
74.500.000 kr.
Fermetraverð
613.169 kr./m2
Fasteignamat
68.500.000 kr.
Brunabótamat
73.250.000 kr.
Mynd af Hólmar Björn Sigþórsson
Hólmar Björn Sigþórsson
Löggiltur fasteignasali
8933276www.helgafellfasteignasala.isEignalisti
Byggt 2019
Garður
Pallur
Bílskúr
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2504434
Landnúmer
203726
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Nýlegar.
Raflagnir
Nýlegar.
Frárennslislagnir
Nýlegar.
Gluggar / Gler
Nýlegir.
Þak
Nýlegt.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suður og vestur sólpallur.
Upphitun
Hitaveita / Sögð í lagi.
Inngangur
Sérinngangur
Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu Klængsbúð 20, 815 Þorlákshöfn:

Um er að ræða fallegt, bjart og vel skipulagt 4ra herbergja endaraðhús með innbyggðum bílskúr. Samkvæmt fasteignaskrá er eignin samtals 121,5 fm. og þar af er íbúðarhluti 97,7 fm. og bílskúr 23,8 fm. 

Eignin býður upp á skemmtilegt og fjölskylduvænt skipulag þar sem eldhús, stofa og borðstofa mynda bjart og rúmgott alrými. Úr stofu er útgengt á stóran sólpall sem snýr til suðurs og vesturs. Umhverfis húsið er gróinn garður sem skapar notalega umgjörð um eignina. Húsið er einstaklega vel staðsett miðsvæðis í Þorlákshöfn þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamiðstöð, sundlaug og verslanir.

Skipulag eignarinnar: Eignin skiptist í anddyri, opið alrými með eldhúsi, stofu og borðstofa, gang, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og innbyggðan bílskúr.

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX

Nánari lýsing: 
Anddyri:
Komið er inn í rúmgott anddyri með góðum fataskáp, flísar á gólfi. Innangengt er úr anddyri í bílskúr.
Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð stofa og borðstofa í opnu alrými með eldhúsi. Stórir gluggar hleypa góðri birtu inn í rýmið og úr stofu er útgengt á rúmgóðan sólpall sem snýr til suðurs og vesturs. Parket á gólfi.
Eldhús: Fallegt og vel skipulagt eldhús með dökkri innréttingu og góðu skápaplássi. Í eldhúsinu eru nýr bakaraofn og örbylgjuofn, innbyggður ísskápur, uppþvottavél. Eldhúseyja með skúffum og spanhelluborði veitir góða vinnuaðstöðu. Eldhúsið er opið inn í stofu og borðstofu og myndar með þeim bjart og notalegt alrými. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með brúnum fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi 2: Gott herbergi með brúnum fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi 3: Gott herbergi með hvítum fataskáp og parketi á gólfi. Athygli er vakin á því að herbergið er merkt sem geymsla á teikningu eignarinnar.
Gangur: Tengir saman svefnherbergi og önnur rými eignarinnar. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Fallegt baðherbergi með brúnni innréttingu, hvítum speglaskáp með lýsingu, upphengdu salerni og rúmgóðri, opinni sturtu (walk-in). Flísar á gólfi og veggjum.
Þvottahús: Gott þvottahús inn af bílskúr með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara, vinnuborði, vaski og hvítum skápum. Útgengt er úr þvottahúsinu á sólpallinn. Epoxýhúðun á gólfi.
Bílskúr: Innbyggður 23,8 fm bílskúr með innangengi úr anddyri. Heitt og kalt vatn er í bílskúrnum ásamt stóru geymslulofti sem veitir gott geymslupláss. Epoxýhúðun á gólfi.

Húsið: Húsið er byggt 2019 og er timburhús klætt að utan með bárujárni.  Gólfhiti er í húsinu. 
Lóð: Umhverfis húsið er gróin og snyrtileg lóð. Á suður- og vesturhlið er stór sólpallur sem býður upp á góða möguleika til útiveru. Grasflöt er við pallinn og framan við húsið er innkeyrsla með mulningi, trépallur við aðalinngang og ruslatunnuskýli.

Hér er á ferðinni einstaklega fallegt og vel skipulagt endaraðhús á góðum stað í Þorlákshöfn. Eignin sameinar björt og notaleg íbúðarrými, þrjú herbergi í notkun, innbyggðan bílskúr, stóran sólpall og gróinn garð. Staðsetningin er sérlega hentug fyrir fjölskyldur þar sem öll helsta þjónusta, skólar og íþróttaaðstaða eru í næsta nágrenni. Mjög áhugaverð eign sem vert er að skoða!

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is. 

Þorlákshöfn – fjölskylduvænt samfélag þar sem gott er að búa

Þorlákshöfn er ört vaxandi og fjölskylduvænt bæjarfélag þar sem gott er að búa, ala upp börn og njóta lífsgæðanna. Bærinn sameinar kosti rólegs og notalegs samfélags við nálægð við höfuðborgarsvæðið og aðra þéttbýliskjarna á Suðurlandi.

Í Þorlákshöfn er lögð rík áhersla á góða þjónustu við fjölskyldur og börn. Stuttar vegalengdir gera daglegt líf einfaldara og þægilegra, enda er stutt í skóla, leikskóla, íþróttamannvirki og aðra helstu þjónustu. Börn og ungmenni eiga því auðvelt með að komast gangandi eða hjólandi í skóla og tómstundir.

Öflugt skóla- og frístundastarf er einn af styrkleikum bæjarfélagsins. Þar er vel búinn grunnskóli þar sem áhersla er lögð á persónuleg samskipti og gott samstarf heimila og skóla. Í bænum eru einnig leikskólarnir Bergheimar og Hraunheimar sem þjóna yngstu íbúunum.

Íþrótta- og tómstundaaðstaða er til fyrirmyndar og býður upp á fjölbreytta möguleika til hreyfingar og útivistar fyrir alla aldurshópa. Öflugt félags- og íþróttalíf er mikilvægur hluti af samfélaginu.

Þorlákshöfn hefur jafnframt vakið athygli þeirra sem vilja fá meira íbúðarrými fyrir fjármunina. Í samanburði við höfuðborgarsvæðið getur þar gefist kostur á rúmbetra húsnæði með góðu útisvæði, án þess að fórna nálægð við helstu þjónustu og atvinnusvæði.

Þorlákshöfn er því spennandi valkostur fyrir fjölskyldur og einstaklinga sem vilja njóta góðra lífsgæða, rúmgóðs heimilis og notalegs samfélags þar sem stutt er í allt það helsta.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
04/03/202560.800.000 kr.72.800.000 kr.121.5 m2599.176 kr.Já
22/06/202240.800.000 kr.66.200.000 kr.121.5 m2544.855 kr.Já
07/04/202240.800.000 kr.51.500.000 kr.121.5 m2423.868 kr.Já
25/05/202138.450.000 kr.48.000.000 kr.121.5 m2395.061 kr.Já
09/04/201921.700.000 kr.28.300.000 kr.121.5 m2232.921 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2019
23.8 m2
Fasteignanúmer
2504434
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
05
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
8.850.000 kr.

Myndir (33)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ólafsvegur 45
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Ólafsvegur 45
Ólafsvegur 45
625 Ólafsfjörður
130,9 m2
Raðhús
413
305 þ.kr./m2
39.900.000 kr.
Skoða eignina Hornbrekkuvegur 7
Efsta hæð
Hornbrekkuvegur 7
625 Ólafsfjörður
145,6 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
414
223 þ.kr./m2
32.500.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarvegur 53
Skoða eignina Hlíðarvegur 53
Hlíðarvegur 53
625 Ólafsfjörður
136,6 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
514
263 þ.kr./m2
35.900.000 kr.
Skoða eignina Skógarvegur 6
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Skógarvegur 6
Skógarvegur 6
103 Reykjavík
145,4 m2
Fjölbýlishús
423
928 þ.kr./m2
134.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin