Miklaborg kynnir: Fallegt og töluvert endurnýjað einbýlishús með rúmgóðum bílskúr og glæsilegu útisvæði með um 100 fm sólpalli, heitum potti, gufu og útisturtu.
Um er að ræða einstaklega hlýlegt og vel skipulagt 140,7 fm einbýlishús á einni hæð í rólegu og vinsælu hverfi. Stutt er í leik- og grunnskóla. Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð og býður upp á björt rými og afar skemmtilegt útisvæði.
Nánari lýsing:
Komið er inn í rúmgóða forstofu með fataskáp. Eldhús er mikið endurnýjað með fallegri blöndu af ljósri og dökkri innréttingu, góðu skápaplássi og borðkrók. Inn af eldhúsi er snyrtilegt þvottahús með útgengi út á stóra timburverönd.
Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar með fallegum arni sem setur hlýlegan svip á rýmið. Útgengi er út á timburverönd sem liggur á þrjá vegu í kringum húsið.
Á svefnherbergisgangi eru þrjú svefnherbergi auk vinnuherbergis. Baðherbergi er endurnýjað með ljósri innréttingu, sturtu með hertu glerskilrúmi, upphengdu salerni og flísum á veggjum og gólfi.
Á gólfum íbúðar er gegnheilt parket nema í forstofu, þvottahúsi og baðherbergi þar sem flísar eru.
Bílskúr er rúmgóður (33 fm) með einangruðu og klæddu lofti, hitaveitu og lökkuðu gólfi. Gönguhurðir eru á báðum skammhliðum ásamt nýlegri bílskúrshurð með rafmagnsopnun. Hleðslustöð á staðnum fylgir með.
Umhverfis húsið er um 100 fm aflokuð timburverönd með 9 m² útigeymslu, heitaveitupotti frá NormX með hitastýringu, nýlegum sauna-klefa með app-stýringu og útisturtu. Auk þess er rúmgóður garður umhverfis húsið á þrjá vegu.
Samkvæmt deiliskipulagi er heimild fyrir stækkun hússins allt að 270 fm.
Upplýsingablað seljenda um ástand eignarinnar er hægt að nálgast hjá fasteignasölunni.
Falleg og fjölskylduvæn eign á eftirsóttum stað í 112 Reykjavík!
Nánari upplýsingar veitir Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 27/05/2020 | 60.550.000 kr. | 68.200.000 kr. | 140.7 m2 | 484.719 kr. | Já |
| 12/09/2016 | 38.900.000 kr. | 49.900.000 kr. | 140.7 m2 | 354.655 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
112 | 165.8 | 125,9 | ||
112 | 161.1 | 127,9 | ||
112 | 118.7 | 117,9 | ||
112 | 115.2 | 114,9 | ||
112 | 137.2 | 132,8 |