Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Kaupstaður fasteignasala ehf. kynnir Efstahjalla 19, 200 Kópavogi. 4 herbergja íbúð á 1.hæð. Stutt er í leikskóla/skóla og helstu verslanir.
Íbúðin er skráð 97,8 fm.
Eignin skiptist í: hol, eldhús, stofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi.
Forstofa: Flísar á gólfi.
Stofa: Rúmgóð og björt stofa með parketi á gólfi. Útgangur út á góðar suð-vestur svalir
Eldhús: Bjart og snyrtilegt með endurnýjaðri hvítri innréttingu og góðum borðkrók. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi I: Rúmgott með skápum og parket á gólfi.
Svefnherbergi II: Með dúk á gólfi.
Herbergi III: Er í dag opið inní holið sem skrifstofu eða sjónvarps rými, lítið mál að loka.
Baðherbergi: Snyrtilegt og bjart með góðum glugga, hvítri innréttingu, baðkari, flísar á glólfi.
Geymsla: Góð geymsla er í kjallara.
Sameign: Í sameign er sameiginlegt þvottahús, hjóla- og vagnageymsla.
Húsið er allt endurbætt að utan. Nýjar skólp- og dren lagnir, nýjar svalir, húsið allt steypuviðgert og málað og allir gluggar í íbúðinni endurnýjaðir. Þakið var endurnýjað fyrir nokkrum árum.
Íbúðin er laus til afhendingar.
FyrirvararÍ lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
200 | 101.2 | 74,5 | ||
200 | 85.4 | 79 | ||
200 | 102.1 | 74,9 | ||
200 | 85 | 74,9 | ||
200 | 85.4 | 79 |