Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega vel skipulagt þó nokkuð endurnýjað og frábærlega staðsett 242,5 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum, að meðtöldum 35,0 fermetra bílskúr, við Valhúsabraut á Seltjarnarnesi. Verulega aukin lofthæð er í hluta hússins, gluggasetning mjög falleg og útsýni frá eigninni er óviðjafnanlegt.
- Elhúsinnrétting og tæki eru frá 2024
- Bæði baðherbergi endurnýjuð að mestu árið 2024
- Raflagnir og tafla eru nýlega endurnýjuð
Auðvelt er að nýta húsið sem tvær íbúðir og er það í dag innréttað sem slíkt. Húsið stendur á mjög fallegri og ræktaðri 825,0 fermetra lóð og fyrir liggur að auka má byggingarmagn á lóðinni umtalsvert.
Bókið tíma á skoðun eignarinnar í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.isLýsing eignar:Forstofa, komið inn á stigapall á milli hæða, teppalagðan og þaðan steyptur teppalagður stigi upp á efri hæð og niður á neðri hæð.
Stigapallur á efri hæð, teppalagður.
Hol, hnotu-parketlagt og með innbyggðu fatahengi.
Gangur, hnotu-parketlagður.
Barnaherbergi I, teppalagt.
Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf, mosaiklagðir veggir og nýtt baðkar með sturtuaðstöðu.
Hjónaherbergi, rúmgott, ullarteppalagt og með útgengi á svalir til austurs með fallegu útsýni yfir Valhúsahæðina, að Esjunni og víðar.
Fataherbergi, innaf hjónaherbergi, ullarteppalagt, gluggi og fallegar nýjar innréttingar með lýsingu í. Hægt að breyta aftur í barnaherbergi.
Borðstofa, innaf holi er hnotu-parketlögð og björt með gólfsíðum gluggum til suðurs og útgengi á suðursvalir.
Eldhús, korklagt og rúmgott með góðri borðaðstöðu. Ný vönduð og falleg innrétting með innbyggðri uppþvottavél, stórri nýrri SMEG samstæðu, vínkæli og Dover-White marmara á borðum og á milli skápa.
Setustofa, sem gengið er í upp þrjú þrep úr borðstofu er hnotu-parketlögð og björt með virkilega fallegu útsýni út á sjóinn, að Snæfellsjökli, Akrafjalli og víðar.
Neðri hæð, sem bæði er innangengt í og með sérinngangi skiptist þannig:Stigapallur, teppalagður.
Þvottaherbergi, innaf stigapalli er með glugga, lakkað gólf og niðurfall í gólfi.
Hol, parketlagt og með fatahengi.
Barnaherbergi II, parketlagt og rúmgott.
Barnaherbergi III, parketlagt og með fatashengi.
Gangur, parketlagður.
Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf og nýtt baðkar með sturtuaðstöðu.
Eldhús, parketlagt og með glugga. Hvítar innréttingar og lítil borðaðstaða.
Stofa, parketlögð, björt og rúmgóð með gólfsíðum gluggum til suðurs og mikilli lofthæð. Frá stofu er mjög fallegt útsýni út á sjóinn, að Snæfellsjökli og víðar.
Barnaherbergi IV, parketlagt og rúmgott með mikilli lofthæð.
Bílskúr, er með steyptri botnplötu en byggður úr holsteini. Bílskúrinn er með hita, rafmagni, rennandi heitu og köldu vatni, mótor á hurð, gluggum og göngudyrum. Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl við hlið bílskúrs.
Húsið er klætt að utan með bárujárni og var á þeim tíma sem það var klætt einnig einangrað að utan. Bárujárn er á þaki.
Lóðin, sem er eignarlóð, er 825,0 fermetrar að stærð, fullfrágengin með trjágróðri, tyrfðum flötum og holtagrjóti. Fyrir liggur að stækka má húsið umtalsvert.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum útsýnisstað við Valhúsabraut þaðan sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttasvæði Gróttu, sundlaug og fleira.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is