Betri Stofan fasteignasala og Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lgfs, sími 844-9591 - thorir@betristofan.is, kynna:
Vel skipulagt og mikið endurnýjað 225,9 fm raðhús með 4-6 svefnherbergjum og innbyggðum bílskúr á fjölskylduvænum stað á Seltjarnarnesi. Góð aðkoma er að húsinu, hellulögn með snjóbræðslu. Allt húsið er parketlagt og eru innréttingar sérsmíðaðar eftir teikningum Rutar Káradóttur. Þak var endurnýjað ásamt þakgluggum 2023, gluggar hafa verið yfirfarnir og málaðir og gler endurnýjað að hluta. Þakkanntur og annað tréverk yfirfarið 2025. Neysluvatnslagnir hafa verið endurnýjaðar, varmaskiptir á neysluvatni. Lagnagrind mikið endurnýjuð. Raflagnir og lýsing hefur verið yfirfarið og endurnýjað. Skjólgóður suðurgarður hefur verið endurgerður, garðskúr byggður og stór pallur. Nýr skjólveggur milli garða smíðaður 2024 auk þess sem hús var málað að utan. Virkilega vönduð eign sem hefur fengið gott viðhald í gegnum árin.
Nánari lýsing:Komið er inn í forstofu með gólfflísum og góðum fataskáp. Hiti í gólfi. Úr forstofu er innangengt í bílskúr. Úr forstofu er gengið inn í innri forstofu með gestasnyrtingu á vinstri hönd og rúmgott herbergi á hægri hönd. Gestasnyrting er flísalögð með vandaðri viðarinnréttingu, upphengdu salerni og Vola blöndunartækjum. Gegnheilt eikarparket á innri forstofu og herbergi. Stigar upp á miðpall og niður á jarðhæð.
Á miðpalli er komið í fallegt opið rými sem samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu. Gegnheilt eikarparket á öllu rýminu:
Eldhús er rúmgott með sérsmíðuðum innréttingum frá HBH, sandsteinn á borðum, vönduð tæki m.a. SMEG gaseldavél og Vola blöndunartæki.
Borðstofa og stofa rúmgóðar og bjartar, glæsilegur arinn í stofu. Innfeld stýranleg lýsing er í öllu rýminu og bose hljóðkerfi. Úr stofu er gengið út á suðursvalir með stiga niður í garð.
Úr stofu er stigi upp á efsta pall sem skiptist í tvö rúmgóð svefnherbergi og baðherbergi. Inn af öðru svefnherberginu er vandað fataherbergi. Útgengt á svalir sem snúa til norðurs. Gegnheilt eikarparket á herbergjum og gangi.
Gengt hjónaherbergi er baðherbergi. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, vönduð innrétting, Vola blöndunartæki, upphengt salerni, veglegt hornbaðkar með sturtu. Hátt til lofts og rafstýrður opnanlegur gluggi, gluggi sem gefur mikla birtu inn.
Úr innri forstofu er gengið niður á jarðhæð sem skiptist í stórt herbergi sem auðvelt er að skipta upp í tvö herbergi, stórt opið rými sem í dag er nýtt sem sjónvarpsherbergi og vinnuaðstaða. Eikarparket á gólfum. Inn af því er endurnýjað þvottaherbergi með sturtu og geymslu. Úr þvottaherbergi er útgengt í glæsilegan gróinn garð sem snýr í suður.
Bílskúr er innbyggður skráður 21,2 fm, bílskúrshurð með fjarstýrðri rafmagnsopnun.
Aðkoma að húsinu er norðan við húsið, planið er hellulagt og með snjóbræðslu. Rúmgóðar, lokaðar útigeymslur bæði fyrir framan og aftan hús. Mikið endurnýjaður leikvöllur er fyrir framan húsið sem er hluti sameignar nágranna. Framkvæmdasjóður vegna endurnýjunar og viðhalds er til staðar. Áframhald verður á endurnýjun leiktækja.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur thorir@betristofan.is.