Fasteignaleitin
Skráð 11. maí 2026

Silfursmári - útsýnisíbúð

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
116.1 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
139.000.000 kr.
Fermetraverð
1.197.244 kr./m2
Brunabótamat
88.400.000 kr.
Byggt 2023
13. hæð
Svalir
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
25203054
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Eignamiðlun kynnir:

Stórglæsileg 3ja herbergja útsýnisíbúð á 13. hæð (næst efstu) í nýlegu, vel staðsettum nýlegum íbúðarturni í Smárahverfinu í Kópavogi. Gólfhiti. Gólfsíðir gluggar. Loftskiptikerfi. Mikil lofthæð. Stórbrotið útsýni - sjón er sögu ríkari! Tvö bílastæði í bílageymslu fylgja íbúðinni. 

Bókið skoðun. Allar upplýsingar gefur Kári Sighvatsson löggiltur fasteignasali, sími 899-8815, kari@eignamidlun.is 

Um er að ræða nánar tiltekið íbúð 1304 við Silfursmára 2, 201 Kópavogi, F2520305. 3ja herbergja íbúð á 13. hæð. Samkvæmt Fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 116,1 fm, þar af er íbúðarrými 106,6 fm og sérgeymsla er 9,5 fm. Íbúðin skiptist í anddyri, opið eldhús og stofu í stóru alrými, tvö svefnherbergi, baðherbergi og sér þvottahús. Sérgeymsla í kjallara. Íbúðin er mjög nýleg og öll hin snyrtilegasta að innan. Vandaðar innréttingar, fallegt parket á gólfum. Gólfhiti. Loftskiptikerfi. Flísar á baðherbergi og í þvottahúsi. Tvö bílastæði í bílageymslu (jafnvel pláss fyrir þriðja bílinn).

*** Sækja söluyfirlit *** 

Nánari lýsing eignar: 
Anddyri, með góðum fataskápum og innbyggðum bekk, parket á gólfi. 
Eldhús er opið með stórri innréttingu með eldhúseyju. Steinn á borðum. Vönduð eldhústæki frá Siemens Studio Line, tveir ofnar, helluborð með innbyggðum gufugleypi. Innbyggð AEG uppþvottavél. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur. Vínkælir. Parket á gólfi. 
Stofa er rúmgóð, opin og björt með stórum gólfsíðum gluggum. Parket á gólfi. Útgengt er á austur svalir úr stofu. Möguleiki er á svalalokun. 
Svefnherbergi 1 er rúmgott með fataskápum. Parket á gólfi. 
Svefnherbergi 2 er með fataskápum. Parket á gólfi. 
Baðherbergi er með snyrtilegri innréttingu með skúffum og spegla efri skápum. Handlaug. Walk-in sturta. Upphengt salerni. Flísar í hólf og gólf. Gólfhiti eins og í öðrum rýmum íbúðar en einnig handklæðaofn. 
Sérgeymsla (9,5 fm) er í kjallara hússins. 
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign í kjallara hússins. 
Tvö bílastæði í bílageymslu í kjallara hússins, annað er með uppsettri hleðslustöð. Stæðin eru hlið við hlið með mjög góðu plássi á milli svo þriðji bíllinn rúmast jafnvel á milli þeirra. 

Fasteignamat 2026 = 93.500.000 kr.

Hiti er sameiginlegur samkvæmt hlutfallstölu. Eignin er kynt með gólfhitakerfi í öllum rýmum en auk gólfhita er jafnframt handklæðaofn á baðherbergi. Rafmagn er á sérmæli fyrir íbúðina. Loftskiptikerfi er í íbúðinni. Mikil lofthæð.

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar. 
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26. gr. laga nr. 40/2002 um fasteignakaup og 25. gr. laga nr. 26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í. 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (49)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lindasmári 37
Skoða eignina Lindasmári 37
Lindasmári 37
201 Kópavogur
109.2 m2
Fjölbýlishús
413
759 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Hraungata 7 (303)
Bílastæði
Hraungata 7 (303)
210 Garðabær
116.6 m2
Fjölbýlishús
312
1054 þ.kr./m2
122.900.000 kr.
Skoða eignina Hraungata 7 (202
Bílastæði
Skoða eignina Hraungata 7 (202
Hraungata 7 (202
210 Garðabær
116.8 m2
Fjölbýlishús
312
992 þ.kr./m2
115.900.000 kr.
Skoða eignina Strandvegur 11
Bílastæði
Skoða eignina Strandvegur 11
Strandvegur 11
210 Garðabær
118.1 m2
Fjölbýlishús
514
931 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin