Fasteignasalan TORGkynnir: Glæsileg fullbúin sér hæð við Lautarveg 12 í Fossvogsdalnum. Um er að ræða íbúð á 2. hæð í þríbýli merkt: 201. Eignin er skráð skv Þjóðskrá Íslands alls 169,2 fm og þarf af er bílskúr skráður 30.fm og geymslan 9,4fm. Eignin skiptist í forstofu, alrými sem myndar eldhús, borðstofu og stofu, sjónvarpsrými, þvottaherbergi, tvö baðherbergi, 2 svefnherbergi, sér baðherbergi inn af hjónaherbergi. SCHMidt innréttingar frá Parka, Eikar parket frá EBSON, 60x120 flísar frá Parka. Sérafnotaflötur eignarinnar eru tvennar svalir aðrar út frá stofu um10fm.svalir með svalalokun og ca 5fm svalir út frá svefnherbergi og að auki 48,8fm flísalagðar þaksvalir ofan á bílskúrum, þar er gert ráð fyrir heitum potti. 3falt gler. Hljóðdúkur í flestum loftum. Gólfhiti í flestum rýmum.
Í sameign eru geymsla, hjóla og vagna geymsla og lagnarými. Eignin afhendist fullbúin með gólfefnum skv skilalýsingu. Verið er að leggja loka hönd á að klára íbúðina til afhendingar. Húsið stendur innarlega í botnlanga neðst í Fossvoginum þar sem njóta má veðurblíðu, útivistar og örstutt er út á stofnbrautir og í alla þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veitir Lilja Ragnarsdóttir löggiltur fasteignasali í lilja@fstorg.is eða í 663-0464Sækja söluyfirlit hér.
Nánari lýsing: Íbúð afhendist fullbúin með gólfefnum.Frágangur utanhúss: Allir útveggir eru staðsteyptir múraðir og steinsallaðir.
Þak er timbur klætt, burðarvirki er stál og timbursperrur, klætt með 2földum tjörupappa sem er soðin saman á samskeytum ásamt viðeigandi flasningum.
Bílskúrsþak er staðsteypt, einangrað ofanfrá(viðsnúið) lagt 2földum tjörupappa sem er soðin saman á samskeytum ásamt viðeigandi flasningum. Þak er flísalagt á flísa stóla.
Svalir og stigar eru staðsteypt og hitalögn í stigum. Gengið er frá stiga og svalahandriðum með stál handriðum með rimlum..Svala gólf efstuhæðar eru með viðsnúnu þaki og flísalagt á flísa stóla.
Rafkerfi: Útiljós eru á svölum, við inngang í íbúðir og við inngang í sameign.
Gluggar og útihurðir. Í húsinu eru glugga og hurðakerfi úr ál/tré frá DOLITA, gluggar eru með 3földu gleri, gæði samkvæmt ákvæðum gildandi reglugerða. Útidyrahurðir inn í íbúðahluta eru ál/timbur. Svalahurðir frá stofu eru rennihurðir úr áli. Litur glugga er eins utan og innan svo og litur álborða milli glerja.
Lóð er frágenginn, bilaplön og gangstígar hellulagðir, snjóbræðslu kerfi er undir bílaplani, gangstéttum og tröppum.
Íbúðin skilast full kláruð með gólfefnum.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Lilja Ragnarsdóttir löggiltur fasteignasali í lilja@fstorg.is eða í 663-0464Skilalýsing seljanda:Allar innréttingar eru frá Parka af gerðinni SCHMIDT. Borðplötur í eldhúsi og þvottahúsi eru hitaþolinn steinflís.
Eldhúsinrétting, litur VISON og FOX, gott skápa og skúffu pláss, stór eyja með spanhelluborði.
Eldhústæki, innbyggður ísskápur/frystir innbyggð uppþvottavél, bakorofn frá SIMENS og spanhelluborð frá BOSS.
Borðplötur eru hitaþolin steinflís, vaskur er undirlímdur stálvaskur.
Forstofuskápur, litur VISION og FOX,
Baðinnréttingar, litur VISION og FOX, handlaug er niðurfeld í borðplötu, tæki eru að gerðinni GROHE. sturtutæki eru innfeld í vegg.
Fatahirslur, litur FOX og VISION
Þvottahúsinrétting, litur VISION og FOX, stein borðplata og undirlýmdur stálvaskur.
Innihurðir eru hefðbundnar yfirfelldar í sprautulakkaðar í VISON lit.
Gólfefni alrýmis og svefnherbergja frá EBSON, BOEN Castle Oak Semi Smoked White oil
Gólfefni anddyri, þvottahús og baðherbergja eru fallager ljósar 60x120 flísar frá Parka.
Svalir út frá stofu verða með gler svalalokun
Hljóðdúkur með innfeldri lýsingu er í loftum.
Svalalokun er á svölum út frá alrými.Byggingaraðili B-Stjóri ehf.
Arkitektahönnun Úti og Inni Arkitektar
Verkfræðihönnun Verkfræðistofa Þráinn og Benedikt
Raflagnahönnun LUMEX
ATH: grunnteikning í augýsingu getur verið frábrugðin raunverulegu rými að leinhverju leiti.Kaupandi greiðir skipulagsgjald til hins opinbera af eigninni 0.3 % af brunabótamati þegar endanlegt brunabótamat liggur fyrir.Hita- og loftræstikerfi: Gólfhitakerfi er í anddyri, alrými, baðherbergjum og í þvottahúsi, ofnakerfi er í svefnherbergjum. Í íbúðum eru lofttúður með hljóð og ryksíu.
Frágangur sameignar: Geymslur, hjóla og vagnageymslur, geymslugangur og tæknirými: Steyptir veggir eru slípaðir og málaðir og milli veggir gips klæddir og málaðir, gólf hitalögn er í geymslum og sameign og golf eru lökkuð. Allar hurðir í sameign uppfylla þær kröfur sem til þeirra eru gerðar skv.reglugerðum. Raflagnir í sameign fullfrágengnar samkvæmt teikningu.
Gert er ráð fyrir aðgengi að lögnum fyrir rafhleðslustöðvar fyrir rafbíla.
Sorptunnugeymsla verður staðsett á sameiginlegu svæði á lóð.
Seljanda ber ekki að skila sameign eða lóð fullfrágenginni á sama tíma og íbúð verður afhent og áskilur seljandi sér rétt til að júka frágangi sameignar og eða lóðar eftir að íbúðir hafa verið afhentar.
Haf skal eftirfarandi í huga við afhendingu á eign.
Við afhendingu skal kaupandi skoða íbúðina ítarlega. Ef einhverjir ágallar finnast skal kaupandi tilkynna seljanda þá áður en hann hefur framkvæmdir í íbúðinni.
Í nýbyggingum er oft mikill raki svo sem í steypu, floti og málningu. Þessi raki mun hverfa á einu til tveimur árum miðað við venjulega notkun og góða útloftun.
Áður en gólfefni eru lögð þarf að gera viðeigandi rakamælingar. Einnig þarf að tryggja viðeigandi högghljóðdempun undir þau gólfefni sem lögð eru.
Í plötum og veggjum hússins liggja ýmsar lagnir og þarf því að gæta varúðar ef verið er að bora fyrir festingum. Raflagnir í veggjum liggja td. almennt frá tenglum og rofum upp í loft.
Nauðsynlegt er að fylgjast með vatnsmyndun (döggun) innan á gleri. Ef mikil bleyta safnast saman neðst á glerinu getur vatnið skemmt glugga, gólfefni, málningu og spörslun. Því er mikilvægt að hafa gluggafög lítillega opin til að tryggja útloftun, sérstaklega þegar tekur að kólna.
Útidyrahurðir í hjólageymslu og inntaksrými verður að fylgjast vel með og umgangast þannig að engar þvinganir verði við umgang þeirra. Reglulegt viðhald hurðanna er nauðsynlegt.
Nauðsynlegt er að smyrja reglulega lamir á opnanlegum fögum og hurðum.