Borgir fasteignasala kynnir eignina Skipholt 7, 105 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 02-03, fastanúmer
222-8486 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Skipholt 7 er skráð sem 2ja herbergja íbúð á annarri hæð. Birt stærð 69.1 fm.
Nánari upplýsingar veitir
Jóhanna Margrét Jóhannsdóttir lgf , í síma 8200788, tölvupóstur johanna@borgir.is.
Bjarklind Þór, lgf, í síma 6905123, tölvupóstur bjarklind@borgir.is.Um er að ræða bjarta og fallega 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í Skipholti 7 í litlu 6 íbúða fjölbýlishúsi. Húsið er byggt 1954.
Íbúðin skiptist í anddyri, eitt svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu/borðstofu og geymslu.
Eignin er nýmáluð og getur verið laus við kaupsamning. Nánari lýsing:
Anddyri : Flísalagt með skáp og hengi
Eldhús : Flísar á gólfi, hvít eldhúsinnrétting með háf, bökunarofni, innbyggðri uppþvottavél og span helluborði
Stofa/borðstofa : eru samliggjandi eldhúsinu í góðu opnu rými með parketi á gólfi en þaðan er gengið út á suðursvalir. Óvenju hátt er til lofts í stofunni og borðstofunni.
Svefnherbergi : Bjart og rúmgott með skápum, parket á gólfi
Baðherbergi : Með eldri innréttingu, flísar á veggjum ,gólfi og sturtubotni, þvottavél og þurrkari fylgja eigninni
Svalir : Eru skjólgóðar timbursvalir sem snúa til suðurs.
Geymsla : Á jarðhæð er sér geymsla
Bílastæði : Í lokuðu porti að baka til en aðeins íbúar komast í portið.
Rafmagn hefur verið endurnýjað 1997
Snyrtilegur stigagangur og húsinu hefur verið haldið vel við.
Góð staðsetning miðsvæðis í Reykjavík. Nýlega opnaði Bónus verslun í göngufæri við eignina. Íbúðinni fylgir stæði í lokuðu porti. Eignin er laus við kaupsamning.