Skráð 10. júlí 2021
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Benijofar

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
139 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
45.000.000 kr.
Fermetraverð
323.741 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Þvottahús
Sérinng.
Fasteignanúmer
200000721
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*RÚMGÓÐ EINBÝLISHÚS Í NOTALEGUM SPÆNSKUM BÆ* – *GOTT VERÐ*

Falleg, rúmgóð og vel hönnuð einbýlishús  á tveimur hæðum með lokuðum garði verönd út frá stofu og einkasundlaug í Benijofar, ekta spænskum bæ, um 45 mín akstur suður af Alicante. Þrjú svefnherbergi, þrjú baðherbergi, góð stofa, borðstofa og rúmgott eldhús. Stórar svalir út frá svefnherbergi á efri hæð og auk þess 49 fm. þakverönd.

Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali.GSM 893 2495. adalheidur@spanareignir.is og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 777 4277. karl@spanareignir.is

Nánari lýsing:

Aðalhæð: Komið er inn í opið rými þar sem er stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými. þvottahús/geymsla inn af eldhúsi. Svefnherbergi og baðherbergi. Útgengi út á verönd og sundlaugarsvæðið.
Efri hæð: Tvö svefnherbergi, bæði með sér baðherbergi. Útgengi út á svalir og einnig upp á þakveröndina.

Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun fylgir.
Rafmagnstæki í eldhúsi fylgja og auk þess þvottavél.
Stæði fyrir bíl í lokuðum garði.

Garðurinn er hellulagður og með gervigrasi að mestu. Einkasundlaug, sem tengist vel góðri verönd út frá stofu. Þar er gott pláss  t.d. til að borða úti eða njóta sólarinnar við sundlaugarbakkann.

HÆGT ER AÐ SKOÐA GLÆSILEGT SÝNINGARHÚS Á STAÐNUM.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d.  La Marquesa, og  La Finca, glæsilegan PGA golfvöll. Einnig eru fleiri góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin og Las Colinas.

Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Guardamar og ca. 15-20 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.

Aðeins örfá hús í boði.
Verð frá 300.000 evrum  + kostn. (ISK 45.000.000 + kostn. gengi 1Evra=150 ISK.)

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra.
Mögulegt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum gegn aukagjaldi.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: 

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Benijofar er skemmtilegur ekta spænskur bær á Costa Blanca svæðinu, í góðu umhverfi með sjarmerandi hefðbundnu spænsku bæjarlífi, Fiestum og götumarkaði, verslunum og veitingastöðum. Ca. 20-30 mín. akstur í suður frá Alicante flugvellinum. Ca. 10 mín. akstur á tvo góða golfvelli, La Finca og La Marquesa, og ótal fleiri góðir golfvellir eru í innan við 20 mín akstursleið frá Benijofar. Aðeins 8 km. frá fallegu ströndunum á Costa Blanca og ekki nema 2-3 mín akstur eða góður göngutúr til Ciudad Quesada og Dona Pepa, sem eru vinsælir og líflegir bæir sem iða af mannlífi allt árið.
Þetta er því staðsetningin fyrir þá sem vilja upplifa ekta spænskt umhverfi, en njóta þæginda og þjónustu nútímans.


Eiginleikar: bílastæði, þakverönd, air con, einkasundlaug, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, Benijofar
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.eignir.isEignir í sölu

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Punta Prima
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Punta Prima
Spánn - Costa Blanca
116 m2
Fjölbýlishús
423
403 þ.kr./m2
46.800.000 kr.
Skoða eignina Sumareignir Vistabella
Sumareignir Vistabella
Spánn - Costa Blanca
141 m2
Einbýlishús
433
316 þ.kr./m2
44.500.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia Resort
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia Resort
Spánn - Costa Blanca
102 m2
Fjölbýlishús
423
420 þ.kr./m2
42.800.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Vistabella Golf
SPÁNAREIGNIR - Vistabella Golf
Spánn - Costa Blanca
110 m2
Einbýlishús
433
407 þ.kr./m2
44.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2023 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache