Fasteignaleitin
Skráð 4. maí 2026

Hlíðarhjalli 30

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
192.5 m2
7 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
129.900.000 kr.
Fermetraverð
674.805 kr./m2
Fasteignamat
121.000.000 kr.
Brunabótamat
81.600.000 kr.
KP
Kristín Pétursdóttir
Lögg fasteignasali
Eignir í sölu
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2061798
Landnúmer
114698
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer íbúðar
010201
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
Upphaflegar
Svalir
0
Lóð
0.00
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging

Miklaborg og Kristín Pétursdóttir kynna: Fallega og sólríka 192,5 fm. séreign á tveimur hæðum með bílskúr í tvíbýlishúsi, innst í botlanga neðst í suðurhlíðum Kópavogs. Fjögur svefnherbergi, tvennar suðursvalir, bílskúr og þrjú bílastæði. Stutt í skóla, alla þjónustu og frábær útivistarsvæði í Kópavogsdalnum.

Nánari upplýsingar veitir Kristín Pétursdóttir, lögg. fasteignasali í síma 8241965 eða kristin@miklaborg.is

Nánari lýsing: Um er að ræða efri hæð og hálfa neðri hæð með sérinngangi í tvíbýlishúsi. Eignin skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, fjögur svefnherbergi, sjónvarpsrými, hol, tvö baðherbergi og geymslu, samtals 160 fm. auk 32,5 fm. bílskúrs, samtals 192,5 fm.

Gengið er inn í húsið á neðri hæð en aðkoman er flísalögð og upphituð. Á neðri hæð er flísalögð forstofa með skápum, flísalagt rúmgott hol, eitt rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi og skápum, flísalögð gestasnyrting með glugga og geymsla með hillum og gluggum. Geymslan er parketlögð og gæti nýst sem herbergi. Frá holi er parketlagður stigi upp á efri hæð. Á efri hæð er hol/sjónvarpsrými, eldhús, þvottahús, stofa og borðstofa, þrjú svefnherbergi og baðherbergi.

Eldhúsið er með innréttingu úr beiki með hvítum hurðum að hluta og borðkrók, tengt fyrir uppþvottavél. Þvottahúsið er inn af eldhúsi með skolvask og gluggum, þaðan er útgengt út að skjólgóða verönd.

Stofurnar eru mjög bjartar með útsýni og stórum L-laga yfirbyggðum svölum í suður. Frá holi efri hæðar er gengið í svefnherbergisgang. Hjónaherbergið er rúmgott með skápum og þaðan er útengt út á aðrar rúmgóðar suðursvalir. Tvö góð barnaherbergi eru á efri hæð, annað með skáp. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með fallegri hvítri innréttingu, sturtu, baðkari og upphengdu salerni.

Bílskúrinn er rúmgóður, með inngönguhurð, hillum, gluggum, hita, vatni og rafmagni. Hellulagt plan er fyrir framan bílskúrinn og þrjú bílastæði fylgja eigninni.

Frábær eign í tvíbýlishúsi á besta stað í suðurhíðum Kópavogs.

Nánari upplýsingar veitir Kristín Pétursdóttir, lögg. fasteignasali i síma 8241965 eða kristin@miklaborg.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (53)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Úugata 6
Bílastæði
Skoða eignina Úugata 6
Úugata 6
270 Mosfellsbær
162.6 m2
Fjölbýlishús
44
787 þ.kr./m2
127.900.000 kr.
Skoða eignina Maríugata 28
3D Sýn
Opið hús:13. maí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Maríugata 28
Maríugata 28
210 Garðabær
89.9 m2
Fjölbýlishús
312
895 þ.kr./m2
80.500.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 168 íb602 Heklureitur
Bílastæði
Laugavegur 168 íb602 Heklureitur
105 Reykjavík
112.2 m2
Fjölbýlishús
312
1203 þ.kr./m2
135.000.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 170 íb403 Heklureitur
Bílastæði
Opið hús:10. maí kl 13:00-14:00
Laugavegur 170 íb403 Heklureitur
105 Reykjavík
94.1 m2
Fjölbýlishús
312
1115 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin