Helgafell fasteignasala og Linda Björk Ingvadóttir löggiltur fasteignasali kynna bjarta og rúmgóða 2ja herbergja íbúð á 8.hæð við Boðagranda 7 í Reykjavík. Æðislegt útsýni í margar áttir. Eign sem vert er að skoða!Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.
Nánari lýsing:Forstofa með viðarparketi á gólfi.
Stofa er björt með viðarparketi á gólfi. Útgengi á suðaustur svalir með æðislegu útsýni.
Eldhús er með rúmgóðri innréttingu, innbyggðri uppþvottavél og viðarparketi á gólfi. Dásamlegt sjávarútsýni úr eldhúsglugga.
Svefnherbergi er stórt með fataskápum og viðarparketi á gólfi.
Baðherbergi með innréttingu, baðkari með sturtuaðstöðu, glugga, upphengt salerni, tengi fyrir þvottavél/þurrkara. Listaverk eftir Kuregej Alexandra er við baðkarið og einnig fyrir ofan spegilinn.
Geymsla er 4,5fm í kjallara.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallara.
Næg bílastæði fyrir utan og gott leiksvæði.
Falleg eign á góðum stað í Reykjavík. Örstutt í skemmtilegar gönguleiðir við sjávarsíðuna. Stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla.Smelltu hér til að fá sent söluyfirlit yfir eignina ** Fyrirhugað fasteignamat 2026 er 56.150.000 kr **Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:Linda Björk Ingvadóttir löggiltur fasteignasali
s. 868 7048 / linda@helgafellfasteignasala.is