Skemmtileg 4ra herbergja íbúð með aukinni lofthæð til sölu á Vesturgötu 46a í gamla Vesturbænum í nálægð við alla þjónustu og afþreyingu miðborgarinnar.Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er íbúðin skráð 101,4 fm, þar af 96,8 fm íbúð og 4,6 fm sérgeymsla.
* Húsið málað að utan 2022
* Rafmagn í íbúð yfirfarið og endurnýjað að hluta 2021
* Neyslu- og frárennslislagnir yfirfarnar 2014-2015Forstofa er sameiginleg með efri hæð.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu og eyju, ofn og gaseldavél í eyju. (innbyggð uppþvottavél í innréttingu). Útsýni yfir höfnina og Esjuna úr eldhúsinu. Útgengi í garð úr eldhúsi í gegnum sameiginlegan garðinngang.
Borðstofa og stofa í sama rými og eldhús. Rúmgott og bjart alrými.
Baðherbergi er flísalagt með baðkari og innréttingu undir skolvaski.
Svefnherbergi: Þrjú rúmgóð herbergi, öll með aukinni lofthæð. Rúmgóðir skápar í hjónaherbergi fylgja, innbyggðir skápar í öðru barnaherbergjanna.
Sérgeymsla í sameign ásamt sameiginlegu
þvottahúsi og
hjóla/vagnageymsla.Sameiginlegur
garður í góðu skjóli og rækt bak við húsið.
Gólffjalir á eldhúsi/stofu og herbergjum.Íbúð á eftirsóknarverðum stað í gamla Vesturbænum-, eign sem vert er að skoða.Nánari upplýsingar veita:
Evert Guðmundsson Lgf. í síma nr 8233022 eða evert@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í síma nr775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.is
www.verdmat.is
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.