Guðlaugur J. Guðlaugsson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:
Einstaklega glæsileg og smekklega endurnýjuð 162,8 fm. skrifstofuhæð / íbúð 4. hæð / efstu hæð í risi við Klapparstíg 29, 101 Reykjavík í virðulegu og fallegu húsi í miðbænum.
Rut kára sá um alla innan húshönun þegar hæðin var öll endurnýjuð að innan í kringum árið 2022. Sett voru upp vönduð gólfefni, alvöru eikarparket á gólfi á öllum rýmum nema inn á baðherbergi og skrifstofu inn af eldhúsi. Vandaðar innréttngar settar upp og öll lýsing var betrumbætt af Lúmex.
Eignin er skráð sem íbúð en er í dag nýtt sem skrifstofur.
Smelltu á linkinn til að skoða skrifstofuna / íbúðina í 3D
Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661-6056 / gulli@remax.isNánari lýsing: Hæðin skiptist í opið alrými, tvískipt með hátt til lofts og bita í loftinu sem setja svip á hæðina. Þrjár rúmgóðar skrifstofur með sérsmíðuðum innréttingum, ein skrifstofan notuð sem fundarherbergi. Eldhús er með innréttingu á tveimur veggjum og vönduðum tækjum. Inn af eldhúsinu er svo fjórða skrifstofan, hún er mun minni en hinar þrjár, þar er teppi á gólfi. Baðherbergið er með sturtu, salerni og baðinnréttingu ásamt opnanlegum glugga, handklæðaofni og gólfhita. Allt flísalagt. Frá alrými fyrir miðju hæðarinnar er gengið út á svalir sem snúa í vestur og út að Klapparstíg.
Sameignin er flott og öll hin snyrtilegasta.
Nýlega var húsið allt múrviðgert að utan, málað og skipt um alla glugga á hæðinni ásamt því að sett var nýr þakpappi á þakið, og nýtt þakjárn ásamt nýjum rennum.
Á sama tíma voru tveir kvistir fjarlægðir í tveimur af þrem skrifstofum hæðarinnar, við það kom betri nýting á hæðina og auknir fm. sem því nemur.
Nánari upplýsingar veita: Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli löggiltur fasteignasali í síma 661-6056 / gulli@remax.is
og Gunnar Sverrir löggiltur fasteignasali í síma 862-2001 / gunnar@remax.is
Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafið samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-