Atvinnueign kynnir til leigu: frá 2.100 fm til 8.100 fm skrifstofurými á Dalvegi 32c í Kópavogi.
Húsnæðið býður upp á einstakt tækifæri fyrir stærri fyrirtæki til að móta framtíðarstarfsstöð sína frá grunni. Í fyrsta áfanga er lögð áhersla á útleigu stærri og samfelldra skrifstofurýma, frá einni heilli hæð og upp í allt að um 8.100 fm. VSK bætist við leiguverð.
Stærsta einstaka skrifstofuhæðin er um 2.700 fm og hægt er að tengja saman fleiri hæðir eftir þörfum. Sveigjanlegt skipulag gefur fyrirtækjum jafnframt kost á að laga húsnæðið að sinni starfsemi, vinnuumhverfi og framtíðarþörfum.
Á jarðhæð verða um 2.100 fm af verslunar- og þjónusturýmum með góðu aðgengi og áberandi staðsetningu. Dalvegur 32C sést vel frá Reykjanesbraut, þar sem um 70.000 ökutæki fara um á hverjum degi. Staðsetningin hentar því sérstaklega vel fyrirtækjum sem leggja áherslu á gott aðgengi og mikinn sýnileika.
Á efri hæðum verða nútímaleg skrifstofurými með ríkulegri dagsbirtu, góðu útsýni og möguleika á að skapa vandað og nútímalegt starfsumhverfi.
Áætluð afhending er í upphafi árs 2028.
Helstu upplýsingar:
Skrifstofur frá um 2.700 fm
Allt að um 8.100 fm af skrifstofuhúsnæði
Möguleiki á einni eða fleiri heilum hæðum
Um 2.100 fm verslunar- og þjónusturými á jarðhæð
Sveigjanlegt skipulag og möguleiki á sérsniðnum innréttingum
Um 70.000 ökutæki fara daglega um Reykjanesbraut
Góð tenging við helstu stofnbrautir höfuðborgarsvæðisins
Áætluð afhending í upphafi árs 2028
Allar nánari upplýsingar veitir:
Ólafur Ingi Guðmundsson, löggiltur fasteignasali og leigumiðlari, í síma
847-7700 eða
olafur@atvinnueign.isÁ vefsíðu okkar getur þú fundið fleiri eignir sem og kynnt þér þjónustu Atvinnueigna ehf,
www.atvinnueign.is - Atvinnueignir eru okkar fag -