Fasteignaleitin
Skráð 11. júní 2026

Víðiteigur 2D

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
99.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
84.900.000 kr.
Fermetraverð
855.847 kr./m2
Brunabótamat
51.000.000 kr.
Sérinng.
Fasteignanúmer
20846951
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Borg fasteignasala og María Mjöll kynna Víðiteig 2D í Mosfellsbæ. Raðhús 99,2 m2 með skjólgóðum afgirtum bakgarði. 
 

Skipulag: Forstofa, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymsla, eldhús, stofa. Rishæð, herbergi, sjónvarpshol.
 
Nánari lýsing: Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi. Á móti tekur gangur þar eru tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús/ geymsla. Hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp, barnaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp. Baðherbergi er flísalagt á gólfi og veggjum, upphengt salerni, "walk-in" sturta, handlaug í innréttingu og speglaskápur þar fyrir ofan. Eldhús og stofa í opnu björtu rými. Eldhús með nýlegri innréttingu, skápar að hluta ofan og neðan borðplötu, ofn í vinnuhæð, gaseldavél,í eldhúsi er borðkrókur sem rúmar eldhúsborð. Stofan er parketlögð, útgengt er í lokaðan skjólgóðan garð. Þvottahús/geymsla með hillum.
Rishæð er að hluta til undir súð og er því stærra en fermetratala segir til um, það nýtist í dag sem sjónvarpshol og herbergi.

Annað: Baðherbergi endurnýjað 2017, eldhús endurnýjað 2022, háfur fyrir ofan eldavél er til og getur fylgt. Í byrjun júní 2026 var skipt um þakpappa, járn, þakkant og rennur. Þakgluggar voru pússaðir og málaðir.

Nánari upplýsingar veitir María Mjöll Guðmundsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8663934 eða maria@fastborg.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.



 
 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugavegur 63 - 2 bílastæði
Laugavegur 63 - 2 bílastæði
101 Reykjavík
127.4 m2
Fjölbýlishús
312
706 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 19,íb. 602
Bílastæði
Hringhamar 19,íb. 602
221 Hafnarfjörður
98.3 m2
Fjölbýlishús
413
833 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 15,íb.702
Bílastæði
Hringhamar 15,íb.702
221 Hafnarfjörður
100.2 m2
Fjölbýlishús
312
917 þ.kr./m2
91.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 15,íb.604
Bílastæði
Hringhamar 15,íb.604
221 Hafnarfjörður
82.1 m2
Fjölbýlishús
312
876 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin