Fasteignaleitin
Opið hús:28. apríl kl 17:00-18:00
Skráð 24. sept. 2021

Mýrargata 27

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
120.1 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
116.900.000 kr.
Fermetraverð
973.356 kr./m2
Fasteignamat
113.700.000 kr.
Brunabótamat
64.600.000 kr.
Mynd af Hera Björk Þórhallsdóttir
Hera Björk Þórhallsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2503431
Landnúmer
223065
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt (2017)
Raflagnir
Upprunalegt (2017)
Frárennslislagnir
Upprunalegt (2017)
Gluggar / Gler
Upprunalegt (2017)
Þak
Upprunalegt (2017)
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
2
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
RE/MAX & HERA BJÖRK Lgf. (s.774-1477 eða herabjork@remax.is) kynna:   
Glæsileg 3-4ra herbergja íbúð á tveimur hæðum með tvennum svölum í fallegu húsi byggðu 2017 við Mýrargötu 27 í miðborg Reykjavíkur. SJÓN ER SÖGU RÍKARI. 

* Vönduð eign & frábær staðsetning í 101, stutt í alla þjónustu og fallegt útsýni 
* Aukin lofthæð að hluta og þrefalt gler með aukinni hljóðeinangrun
* Tvennar svalir & fallegur sameiginlegur garður með útisvæði og geymsluskúr
* Tvö rúmgóð baðherbergi
* Gólfhiti á allri eigninni


** SMELLIÐ HÈR fyrir nánari upplýsingar og/eða til að bóka tíma í skoðun **
** SMELLIÐ HÉR til að fá söluyfirlitið sent samstundis ** 


Nánar um eign: Eignin er samtals 120,1 m² og samanstendur af anddyri & stigagangi, alrými (eldhús, stofa, borðstofa), tveim svefnherbergjum, tveim baðherbergjum og sjónvarspholi. Tvennar suðursvalir. Garður og sameign öll hin snyrtilegasta og vel rekin húsfélög. 

** SMELLTU HÉR og skoðaðu HÚSIÐ í 3-D, þrívíðu umhverfi **

Nánari lýsing: 
2.hæð 
Anddyri: Gengið inn um sameiginlegan inngang með íbúð jarðhæðar og upp teppalagðan stiga á 2.hæð. Á stigapalli er fatahengi. 
Alrými (eldhús / stofa / borðstofa): Opið og bjart rými með gluggum til suðurs og norðurs og fallegu útsýni yfir sjóinn og í átt að Esjunni. Úr alrými er útgengi út á 4,2 m² svalir sem vísa til suðvesturs út í fallegan bakgarð. Eldhúsið er nýlega uppgert og með fallegum sérsmíðuðum frontum frá HAF Studio & IKEA innréttingu í grunninn.  Gott vinnu- og skápapláss í neðri skúffum/skápum. Spanhelluborð, háfur, ofn í vinnuhæð, undirfelldur vaskur og blöndunartæki með útdraganlegum krana. Borðplata úr DEKTON stein sem flæðir upp á vegginn og innbyggð uppþvottavél.  Stofa & borðstofa er opin og rúmgóð og frá stofu er útgegnt út á 4,2 m² svalir sem vísa í suðvesturátt, inn í bakgarð þar sem nýlega var útbúið fallegt útisvæði og geymsluskúr.
Baðherbergi I: Er rúmgott með flísum á gólfi og á veggjum í rúmgóðri sturtu með innfelldum tækjum. Upphengt klósett, vaskaskápur og handklæðaofn.
Þvottahús & geymsla: Er til hliðar við eldhús, við stiga upp á 3 hæð. Góð lofthæð og gott pláss fyrir þvottavél / þurrkara ásamt geymslurými. Flísar á gólfi. Auka geymsla er í skúr sem er staðsettur á útisvæði aftan við hús. 
3.hæð
Sjónvarpshol: Gengið upp teppalagðan stiga á 3.hæð og inn í parketlagt rými sem í dag er nýtt sem sjónvarpshol. Þaðan er útgengt út á 11,8 m² suðvestursvalir. 
Hjónaherbergi:  Rúmgott og notalegt með góðum fataskápum og parket á gólfi. Fallegt útsýni yfir sjóinn og í átt að Esjunni. 
Svefnherbergi:  Bjart með góðum síðum suðurglugga og parketi á gólfi.
Baðherbergi II: Flísar á gólfi og í rúmgóðum sturtuklefa. Upphengt klósett, vaskaskápur og handklæðaofni. Gluggi með opnanlegu fagi. 

Mýrargata 27 er partur af fallegu 3ja hæða fjölbýlishúsi byggðu 2017 á þessum vinsæla stað í Reykjavík. Húsið er bárujárnsklætt timburhús sem stendur á 178 m² lóð sem að nýverið var tekin í gegn, hellulögð og útbúinn fallegur pallur ásamt geymsluskúr og ruslatunnuskýlum. 
Um er að ræða vandaða eign á þessum vinsæla stað miðsvæðis í borginni og býður upp á fjölbreytta þjónustu og afþreyingu í næsta nágrenni, stutt frá skólum, miðbæ Reykjavíkur & fjölbreyttum verslunum og veitingastöðum á Grandanum. Í næsta nágrenni er hin vinsæla Vesturbæjarlaug og við strandlengjuna má finna fallegar gönguleiðir. 
Hér er um að ræða eign sem hentar vel fyrir litla fjölskyldu, pör og/eða þá sem vilja njóta þæginda og lífsgæða á einum vinsælasta stað borgarinnar. Eign sem vert er að skoða.

Í 3D getur þú skoðað eignina hvar sem þú ert í þrívíðu umhverfi, ferðast auðveldlega á milli herbergja og kynnt þér rýmið.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Hera Björk, löggiltur fasteignasali í 774-1477 og/ eða á herabjork@remax.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.600 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
__________________________
Ertu í fasteignahugleiðingum?
Ég hef starfað við fasteignasölu frá árinu 2016 og hef á þeim tíma byggt upp góða reynslu og þekkingu á markaðnum. Fyrir mér skiptir máli að ná góðu verði og leiða viðskiptavini örugglega og faglega í gegnum stærstu fjárhagslegu ákvarðanir lífsins.
Ég legg ríka áherslu á vönduð vinnubrögð, skýr samskipti og markmið mitt er einfalt: að hámarka verðmæti eignar og tryggja faglegt, skilvirkt og árangursríkt söluferli. Ég legg mig fram um að veita persónulega þjónustu með hagsmuni viðskiptavina í forgangi, öryggi og traust frá fyrsta samtali til afhendingar.
Hafðu samband fyrir frítt og skuldbindingarlaust verðmat ásamt greinargóðri ráðgjöf um næstu skref. 
S. 774-1477 / herabjork@remax.is.

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
22/12/202169.050.000 kr.82.000.000 kr.120.1 m2682.764 kr.
28/10/201973.550.000 kr.63.000.000 kr.120.1 m2524.562 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (43)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Þórðarsveigur 30
Bílastæði
Þórðarsveigur 30
113 Reykjavík
97.4 m2
Fjölbýlishús
312
779 þ.kr./m2
75.900.000 kr.
Skoða eignina Fossvogsvegur 8
Bílastæði
Skoða eignina Fossvogsvegur 8
Fossvogsvegur 8
108 Reykjavík
210.8 m2
Fjölbýlishús
524
1139 þ.kr./m2
240.000.000 kr.
Skoða eignina Holtsvegur 6
Skoða eignina Holtsvegur 6
Holtsvegur 6
210 Garðabær
111.1 m2
Fjölbýlishús
312
773 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 1
Skoða eignina Valshlíð 1
Valshlíð 1
102 Reykjavík
58 m2
Fjölbýlishús
211
839 þ.kr./m2
48.675.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin