SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *STÓRGLÆSILEGT PARHÚS Í LOMAS DE CABO ROIG* *EINN EIGANDI FRÁ UPPHAFI* *3 SVEFNH. OG 2 BAÐH.* *AFHENDIST MEÐ HÚSGÖGNUM* *STÓR OG SÓLRÍKUR SÉR GARÐUR, SVALIR OG ÞAKSVALIR MEÐ SJÁVARÚTSÝNI* *SÉR STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU* *UPPHITUÐ SUNDLAUG OG FALLEGUR SAMEIGINLEGUR GARÐUR* Gengið er inn í forstofu og þaðan inn í aðalrými eignarinnar sem skiptist í eldhús, stofu og borðstofu. Eldhús er með fallegri innréttingu, bosch tækjum og góðu skápaplássi. Eldhús tengist stofu vel, og þaðan er hægt að ganga út í garð. Garðurinn er sólríkur og rúmgóður, og þaðan er hægt að ganga beint út í sameiginlegan sundlaugargarð með upphitaðri sundlaug. Í garðinum eru einnig geymsluskápar með rafmagni og ísskáp. Á hæðinni er einnig svefnherbergi með góðu skápaplássi, ásamt baðherbergi með sturtu og þvottaaðstöðu. Einnig er á hæðinni geymsla undir stiga. Gengið er upp á efri hæð og þar eru tvö svefnherbergi til viðbótar, með fataskápum. Úr öðru svefnherberginu er hægt að ganga út á suður svalir. Á efri hæð er einnig baðherbergi með sturtu og glugga. Frá efri hæð er gengið upp á 28 fm þaksvalir, og þar er svo sannarlega hægt að njóta alls sem Spánn hefur upp á að bjóða. Á þaksvölunum er sól frá morgni til kvölds, og útsýni bæði til sjávar og yfir sundlaugargarðinn.
Um er að ræða eign sem hefur fengið frábært viðhald. Hágæða air con kerfi til kælingar og hitunar, og loftvitfur í svefnherbergjum. Vatnsfilter er í eldhúsi. Gólfhiti er á baðherbergjum.
Sérstæði í lokuðum bílakjallara með lyftu.
Eignin afhendist fullbúin með húsgögnum.
Allar upplýsingar gefur:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali. berta@spanareignir.is, sími 0034 615 112 869 Uppgötvaðu sjarma Lomas de Cabo Roig á sólríku Costa Blanca-ströndinni á Spáni. Svæðið er þekkt fyrir afslappað miðjarðarhafslíf, fallegar strendur í nágrenninu og frábært úrval veitingastaða, golfvalla og verslana. Stutt í vinsælu verslunar- og afþreyingarmiðstöðina, La Zenia Boulevard. Hér nýtur þú sólskins allt árið um kring í friðsælu og eftirsóttu umhverfi. Fullkominn staður fyrir sumarhús, fjárfestingu eða varanlegt heimili við spænsku ströndina.
Frábær staðsetning í göngufæri frá ótal verslunum og veitingastöðum. Fjölmargir golfvellir í næsta nágrenni. Stutt á fallega strönd. Um 50 mín akstur frá flugvellinum í Alicante.
Verð 310.000 EvrurEitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á
www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp ca. 12%.
Eiginleikar: bílastæði, upphituð sundlaug, sér garður, air con, húsgögn, suðurgarður, gólfhiti,
Svæði: Costa Blanca, Cabo Roig, Lomas de Cabo Roig,