Fasteignasalan TORG KYNNIR til sölu byggingaréttur fyrir raðhúsalengju Sex fastanúmer: HAUSTBRAUT 111-21. Hvert hús er á tveimur hæðum með bílskúr, heildar stærð lóðar er 2.393fm. Óskað er eftir tilboðum í byggingarrétt, lágmarksverð er alls kr. 144.000.000,- fyrir lóðina. Allar nánari uppl. veitir Sigurður Gunnlaugsson, lgfs í GSM: 898-6106 eða sigurdur@fstorg.is Nánari lýsing: Garðabær auglýsir til sölu byggingarrétti fyrir einbýlishús og raðhús í Hnoðraholti, sjá nánar söluskilmála Garðabæjar,
Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Gunnlaugsson, lgfs í GSM: 898-6106 eða sigurdur@fstorg.is Alls er verið að skipuleggja í Haustbraut tvo botnlagna með 4 lóðir fyrir raðhús á tveimur hæðum.Haustbraut 1-9 er með 5 raðhúsalengju, lóðarstærð: 2.015fm, byggingarmagn per hús 250fm., lágmarksverð kr. 120.000.000,-
Haustbraut 11-21 er með 6 raðhúsalengju, lóðarstærð: 2.393fm, byggingarmagn per hús 250fm., lágmarksverð kr. 144.000.000,-
Haustbraut 23-33 er með 6 raðhúsalengju, lóðarstærð: 2.393fm, byggingarmagn per hús 250fm., lágmarksverð kr. 144.000.000,-
Haustbraut 35-45 er með 6 raðhúsalengju, lóðarstærð: 2.416fm, byggingarmagn per hús 250fm., lágmarksverð kr. 144.000.000,-
Nánari upplýsingar: Deiliskipulag fyrir Hnoðraholt suður - háholt var samþykkt í bæjarstjórn Garðabæjar 5. febrúar 2026 og staðfest með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda 18. júní 2026. Skilmálar þessir um sölu á byggingarrétti lóða á Hnoðraholti - háholti - suður byggja á úthlutunarreglum sem samþykktar voru á fundi bæjarráðs Garðabæjar 13. júní 2023.
Háholt Hnoðraholts - Deiliskipulag:
https://skipulagsgatt.is/issues/2025/488Tilboð í byggingarrétt lóðanna þarf að berast til Fasteignasölunnar TORG, Sigurður Gunnlaugsson, GSM: 898-6106, netfang sigurdur@fstorg.is fyrir kl. 12.00 föstudaginn 30. október 2026 og gilda til kl. 12.00 föstudaginn 6. nóvember 2026. Tilboð verða opnuð og tekin fyrir á fundi bæjarráðs Garðabæjar kl. 08.00 þriðjudaginn 3. nóvember 2026. Einstaklingar og lögaðilar geta lagt fram tilboð í byggingarrétt lóða. Í tilviki samliggjandi par- og raðhúsalóða þarf að koma eitt tilboð í heildarlóðina.
Frekari uppl. samkv. heimasíðu Garðabæjar: Gatnagerðargjöld og byggingarréttargjald:
Gatnagerðargjöld af lóðunum eru samkvæmt gjaldskrá Garðabæjar sem gildir hverju sinni. Tilboðsgjafar gera tilboð í byggingarrétt lóðanna. Byggingarréttargjald innifelur ekki heimæðargjöld veitustofnana, byggingarleyfisgjald, skipulagsgjald, úttektargjöld og önnur slík gjöld. Lóðarhafi greiðir umrædd gjöld í samræmi við gjaldskrár sem gilda hverju sinni.
Lágmarksgatnagerðargjöld af einbýlishúsum, par- og raðhúsum og fjölbýlishúsum:
Einbýlishús 240 fm. kr. 11.683.402
Par- og raðhús 190 fm. kr. 7.367.188
Viðbótargatnagerðargjöld eru greidd af umframfermetrum.
Ofangreindar fjárhæðir breytast í samræmi við byggingarvísitölu m.v. grunnvísitölu í september 2026, 129,6 stig.