Glæsilegt og vel við haldið einbýlishús á einni hæð með bílskúr við Furuvelli í Hafnarfirði
Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna fallegt og vel skipulagt 211,3 fm einbýlishús á einni hæð við Furuvelli 23 í Hafnarfirði. Eignin er skráð 211,3 fm samkvæmt HMS, þar af 179 fm íbúð og 32,3 fm bílskúr. Húsið var byggt árið 2004, er steinsteypt og býður upp á fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi og bjart alrými með útgengi á viðarverönd til suðurs og fallegan garð sem umlykur húsið.
- Einbýlishús á einni hæð
- Gróinn garður með viðarverönd til suðurs
- Bílskúr, hleðslustöð fyrir rafbíl og snjóbræðsla í bílaplani
- Fjögur rúmgóð svefnherbergi
Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða á tinna@haborg.is.
Húsið er skráð 211,3 fm samkvæmt HMS, þar af íbúð 179 fm og bílskúr 32,3 fm. Byggt árið 2004 og steinsteypt. Lóðin er 644 fm.
Nánari lýsing:
Komið er inn í bjarta forstofu með góðum fataskáp og flísum á gólfi.
Við forstofuna er gott svefnherbergi með geymsluplássi í lofti.
Baðherbergi er einnig við forstofu, flísalagt með sturtu, salerni og innréttingu með handlaug.
Eldhús og sjónvarpsstofa mynda samliggjandi rými. Eldhúsið er með fallegri viðarinnréttingu, steinborðplötum og útgengi á viðarverönd.
Stofa og borðstofa eru með parketi á gólfi og gluggum til þriggja átta sem veita rýminu fallega birtu. Þaðan er útgengt á viðarverönd.
Í húsinu eru fjögur svefnherbergi, þar af rúmgott hjónaherbergi með fataherbergi.
Annað baðherbergi er með flísum á gólfi, hornbaðkari, salerni og innréttingu með handlaug.
Þvottahúsið er með góðum skápum, vaski, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Þaðan er bæði útgengt á verönd og innangengt í bílskúr.
Parket var nýlega slípað og lakkað af fagmönnum. Gólfhiti og ofnar eru í húsinu.
Bílskúrinn er 32,3 fm, hleðslustöð fyrir rafbíl er utandyra og allar lagnir fyrir hleðslustöð eru til staðar í bílskúrnum.
Garðurinn umlykur húsið og býður upp á skjólgóð útisvæði til allra átta. Aðalveröndin er til suðurs og nýtur góðrar sólar stóran hluta dags.
Staðsetning:
Furuvellir eru róleg og eftirsótt gata á Völlunum í Hafnarfirði þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, verslun, þjónustu og fjölbreytt útivistarsvæði. Húsin við götuna eru snyrtileg og vel við haldin og að sögn seljanda hefur myndast einstaklega góður og samheldinn nágrannahópur sem hefur verið einn af kostunum við að búa á þessum stað.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða á tinna@haborg.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. er kr. 3.800 fyrir hvert skjal. Lántökugjald er samkvæmt gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu er samkvæmt gjaldskrá.