Fasteignasalan TORG kynnir: Virkilega falleg 5 herbergja íbúð á 3. hæð litlu fallegu lyftuhúsi með stæði í bílageymslu. Eignin stendur á sjávarlóð með fallegu útsýni úr stofuglugga yfir að Álftanesi, Seltjarnarnesi og Snæfellsjökli. Eignin er skráð 118,1 fm og skiptist í 4 svefnherbergi, stofu/borðstofu, eldhús, baðherbergi, sér þvottahús innan eignar og geymslu í kjallara. Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Gunnlaugsson, fasteignasali, í síma 898-6106 eða sigurdur@fstorg.is Sækja söluyfirlit HÉRNánari lýsing: Komið er í inn forstofu með rúmgóðum fataskáp. Inn af forstofu er þvottahús. Við tekur síðan opið og bjart aldými sem rúmar eldhús, stofu og borðstofu. Eldhúsið er með nýrri innréttingu, skápum, tækjum og borðplötu. Stofa/borðstofan er opin og björt með glugga sem vísar til norð-vesturs út á sjó. Frá stofu er gengið út á svalir til suðurs. Baðherbergi er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf með sturtu, eikarinnréttingum og svörtum steini á borði. Hjónaherbergi er rúmgott með eikarfataskápum. Barnaherbergin eru þrjú, fataskápar í öllum herbergjum. Á gólfum er eikarparket utan baðherbergis og þvottahúss sem eru flísalögð. Í sameign er 6,6 fm geymsla og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Sér stæði í upphitaðri bílageymslu merkt B12. Lyfta er í húsinu. Arkitekt hússins er Björn Ólafs. Húsið er byggð árið 2004 af BYGG. Húsfélagið er virkt og vel rekið, sameiginlegt húsfélag fyrir Strandveg 9-11. Sjálandsskóli og leikskólinn Sjáland í fárra mínútna göngufæri, án þess að fara yfir götu.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigurður Gunnlaugsson, fasteignasali, í síma 898-6106 eða sigurdur@fstorg.is Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Kaupandi nýbyggingar greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati eignarinnar.
Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra.