Fasteignaleitin
Skráð 11. júlí 2026

Hraunbrekkur 22

SumarhúsVesturland/Reykholt í Borgarfirði/Reykholt (Borgarfirði)-320
180.1 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
33.000.000 kr.
Fermetraverð
183.232 kr./m2
Brunabótamat
106.250.000 kr.
Byggt 2008
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Sérinng.
Fasteignanúmer
22845672
Húsgerð
Sumarhús
Inngangur
Sérinngangur

Heimkoma er ný tegund fasteignaþjónustu á Íslandi þar sem nokkrar fjölskyldur deila einni eða fleiri gæða frístundaeignum í skipulögðu samfélagi.
 
Í fyrsta verkefni félagsins er um þriggja húsa samfélag að ræða þar sem hver fjölskylda á 1/12 hluta og á því 12 vikur yfir árið í sínum húsum (4 vikur í hverju húsi).
Eignirnar, sem eru  heilsárseignir, eru í þremur mismunandi landshlutum, sem tryggir fjölbreytta notkun allt árið.
 
Kostir sameignar eru meðal annars. Minni fjárfesting. Lægri rekstrarkostnaður. Betri nýting á fasteignum og innviðum. Fjölbreytileiki  í ljósi þriggja staðsetninga. Engar áhyggjur né ábyrgð á viðhaldi eða rekstri, Heimkoma sér um allt.

 
Um fjárfestingu í fasteignum er að ræða, kaupandi er þinglýstur eigandi hluta af þremur fasteignum.
 
HÉR MÁ SJÁ ALLAR UPPLÝSINGAR UM HEIMKOMU

Hraunbrekkur 22, Húsafell er hús nr 1,Hér má ganga um húsið:
 
Stórglæsilegt 180 fm heilsárshús ásamt 20 fm gestahúsi á frábærum stað í Húsafelli. Kjörin eign fyrir stórfjölskylduna, fimm svefnherbergi, þrjú baðherbergi og fleira prýða þessa einstöku eign sem er á tveimur hæðum. Sjón er sögu ríkari.

Neðri hæð:
Komið inn í rúmgott flísalagt anddyri. Inn af anddyri er þvottahús með þvottavél og þurrkara. Innrétting með skolvaski. 
Stofa og borðstofa eru opin við eldhús. Á neðri hæð er einnig rúmgott svefnherbergi og stórt baðherbergi með sturtu og sauna. Hurð út á verönd með heitum potti og útisturtu. 
 
Efri hæð:
Þrjú svefnherbergi öll með útgengi á svalir.
Stórt svefnherbergi með baðherbergi. Baðherbergið er með gólfhita og baðkari.
Annað stórt svefnherbergi með fataherbergi/geymslu inn af herbergi.
Rúmgott svefnherbergi með skrifstofuaðstöðu. 
 
Gestahús: 
Rúmt gestahús með baðherbergi með sturtu.
Í öðrum enda gestahúsins er geymsla og þar eru inntök og varmaskiptir fyrir hitakerfi húsins.
 
Húsið er með ofnakerfi í öllum herbergjum en einnig gólfhita á jarðhæð og í baðherbergi á efri hæð. Skipt var um stýrikerfi í húsinu á síðasta ári og settur varmaskiptir fyrir heita vatnið þannig að hægt er að stýra því með snjallforriti. Þannig er t.d. hægt að kveikja á heitapottinum fyrir komu í húsið.
 
Stór pallur er í kringum húsið og geymsluskúr fyrir grill og útihúsgögn. Heimkomu eignir eru alltaf afhentar fullbúnar húsgögnum og öllum hús- og tækjabúnaði.
Hér er um að nýja leið til að eignast hlut í einstökum húsum á eftirsóttum stöðum. Húsið er númer eitt af þremur og á ásett verð við um 1/12 hlut í þeim öllum. Heildarverð húsana með innbúi og öðru er tæplega 400 milljónir.

Hús númer tvö er á Akureyri, í göngufæri frá miðbænum og verður það afhent í byrjun sumars. HÉR MÁ SJÁ HÚS NR 2.

Hús númer þrjú verður á suðurlandi / Grímsnesi og verður það afhent næst komandi haust. 

Húsin eru öll í sömu gæðum og að svipaðri stærð. Öll eru húsin fullbúin heimilistækjum, húsgögnum og öðrum nauðsynlegum búnaði, eins og t.d. heitum potti og gufubaði.
 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Lind fasteignasala ehf
www.fastlind.is

Myndir (51)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bláskógar 4
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Bláskógar 4
Bláskógar 4
301 Akranes
67 m2
Sumarhús
414
551 þ.kr./m2
36.900.000 kr.
Skoða eignina Akralundur 17
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Akralundur 17
Akralundur 17
300 Akranes
183,6 m2
Raðhús
524
599 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Kjarrás 12
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Kjarrás 12
Kjarrás 12
301 Akranes
91,4 m2
Sumarhús
625
874 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Eikarskógar 6
Heitur pottur
Skoða eignina Eikarskógar 6
Eikarskógar 6
300 Akranes
193,7 m2
Einbýlishús
524
594 þ.kr./m2
115.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin