Fasteignaleitin
Opið hús 07. júní kl 17:30-18:00
Skráð 2. júní 2023
Deila eign
Deila

Hnjúkamói 10 íBÚÐ 102

Nýbygging • FjölbýlishúsSuðurland/Þorlákshöfn-815
70.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
43.800.000 kr.
Fermetraverð
621.277 kr./m2
Fasteignamat
14.250.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Byggt 2022
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2518996
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðar í húsi
2
Hæðar í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Lóð
10,72
Upphitun
Hitaveita ofnar
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
4 - Fokheld bygging
Matsstig
4 - Fokheld bygging
Kvöð / kvaðir
Kvaðir eru um almennar lagnir veitustofnanna innan lóðar. Sjá lóðarleigusamning, skjal nr. 447-X-002799/2022
BYR fasteignasala kynnir HNJÚKAMÓI 10 ÍBÚÐ 102, Ölfusi. Ný þriggja herbergja íbúð á neðri hæð,  við miðbæ Þorlákshafnar Ölfusi. Ýtið hér fyrir staðsetningu. 
Hafðu samband og bókaðu einkasýningu, sýnum samdægurs: ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR HJÁ BYR FASTEIGNASÖLU, Elín og Sigurbjörg s. 483-5800 / 859-5885.
Í Móabyggð rís ný lágstemmd byggð tveggja hæða fjölbýlishúsa, allar íbúðir hafa sér inngang og sér bílastæði með möguleika á uppsetningu hleðslustöðva. 6-8 íbúðir eru í hverju húsi, sjá hér fleiri íbúðir sem við höfum til sölu í Móabyggð.


ÍBÚÐIN VERÐUR TILBÚIN TIL AFHENDINGAR 15 júni 2023. Sér inngangur er í íbúðina.
ÍBÚÐ 102 NEÐRI HÆÐ. Íbúðin er 70,5 m², þar af geymsla 6,7 m² samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymsla.
EIGNINNI VERÐUR SKILAÐ fullbúinni án megin gólfefna, SAMKVÆMT SKILALÝSINGU.
Ýtið hér fyrir heimasíðu Móabyggðar. 
MYNDIR Í AUGLÝSINGU ERU ÚR SÝNINGARÍBÚÐ AÐ HNJÚKAMÓA 12.
Ljósmyndir eru úr sambærilegri eign í sambærulegu húsi frá sama verktak og eru því eingöngu til viðmiðunar. 


Nánar um íbúð: 
Anddyri með tvöföldum fataskáp.
Alrými með stofu og eldhúsi. Útgengt er út á sérnotareit frá stofu.
Eldhús með Svansvottaðri HTH innréttingu, Dusty grey melamine filma er á eldhúsinnréttingu á neðri skápum og háum skápum. Efri skápar í eldhúsi eru með dökkri viðarárferð. Skúffur með mjúklokun. 
Heimilistæki eru vönduð af AEG gerð, spanhelluborð, bakaraofn með sjálfhreinsikerfi. Stálvaskur með einnar handar blöndunartæki. Gert er ráð fyrir að hægt sé að vera með innbyggða uppþvottavél og ísskáp + frysti, framhliðar fylgja.
Svefnherbergin eru tvö. Hjónaherbergi með HTH fataskáp yfir heilan vegg. Barnaherbergi með fataskáp. Fataskápar ná upp í loft með aðfellu. Innvols innréttinga og fataskápa er hvítt, grindur í fataskápum eru krómaðar
Baðherbergi, flísalagt gólf, hluti veggja, sturtuhorn er flísalagt með 30x60 flísum. Vegghengt salerni, baðinnrétting með handlaug í borði og einnar handar blöndunartæki, sturta og handklæðaofn. Innrétting fyrir þvottavélar er á baðherbergi.
Sérgeymsla  6,7 m² er í sameiginlegu geymslurými á neðri hæð hússins. 
Íbúðinni fylgir sérnotaréttur af einu bílastæði á sameiginlegri bílastæðalóð. Lagnaleið fyrir rafhleðslustöðvar liggja úr hverju húsi að bílastæðum þess húss. 

Veggir og loft íbúðarinnar verða máluð í hvítum lit. Loftræsting, öll rými íbúðar eru náttúrulega loftræst í gegnum glugga ásamt því að loft er tekið inn um tvo ferskloftsventla. Vélrænt útsog er á baðherbergi, eldhúsi og þvottahúsi.
Reykskynjarar og slökkvitæki fylgja öllum íbúðum.

Nánar um húsið. Hnjúkamói 10 er átta íbúða tvílyft hús.  Allir útveggir ásamt berandi innveggjum og milligólf eru staðsteypt. Gólfplötur milli íbúða eru staðsteyptar einnig eru stigar, svalir og svalagangar staðsteypt eða steypueiningar með endanlegu yfirborði.
Útveggir eru einangraðir að utan og klæddir með smábáru og sléttri málmklæðningu að hluta. Þak er viðsnúið með pvc dúk. Á hvorri hæð eru fjórar íbúðir og fjórar geymslur ásamt sameiginlegu tæknirými. Tveir stigar liggja upp á efri hæð.

Móabyggð fyrsti áfangi, afmarkast af Hnjúkamóa í suðri, Klettamóa í norðri og Rásamóa í austri. Göturnar Hnjúkamói og Klettamói eru tengdar saman með vistgötum. Malbikuð bílastæði eru við Hnjúkamóa, Klettamóa, Rásamóa og í vistgötum. Auk þess eru gestastæði á svæðinu. Miðsvæðis milli bygginga er dvalarsvæði ætlað til útivistar og leiksvæði.

Tölvuteikningar eru eingöngu til viðmiðunar, en endurspegla ekki endilega endanlegt útlit eignarinnar. 
Samþykktir aðaluppdrættir hönnuða eru gildandi ef upp kemur misræmi á milli þeirra og annarra gagna. Allt auglýsinga og kynningarefni t.d. þrívíddar myndir/teikningar og litir í þeim eru eingöngu til hliðsjónar ekki er um endanlegt útlit að ræða.  Athygli er vakin á því að á meðan byggingarframkvæmdum stendur áskilur seljandi sér allan rétt til að gera tækni-, efnis- og útlitsbreytingar. Allt myndefni birt með fyrirvara – byggingarnefndarteikningar gilda.


ÖLFUS - Hamingjan er hér.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byr fasteignasala
https://www.byrfasteign.is

Sambærilegar eignir

Skoða eignina KLETTAMÓI 9 ÍBÚÐ 203
 07. júní kl 17:30-18:00
Klettamói 9 Íbúð 203
815 Þorlákshöfn
70.5 m2
Fjölbýlishús
312
621 þ.kr./m2
43.800.000 kr.
Skoða eignina KLETTAMÓI 9 ÍBÚÐ 202
 07. júní kl 17:30-18:00
Klettamói 9 Íbúð 202
815 Þorlákshöfn
70.5 m2
Fjölbýlishús
312
621 þ.kr./m2
43.800.000 kr.
Skoða eignina KLETTAMÓI 9 ÍBÚÐ 103
 07. júní kl 17:30-18:00
Klettamói 9 Íbúð 103
815 Þorlákshöfn
70.5 m2
Fjölbýlishús
312
621 þ.kr./m2
43.800.000 kr.
Skoða eignina KLETTAMÓI 9 ÍBÚÐ 102
 07. júní kl 17:30-18:00
Klettamói 9 Íbúð 102
815 Þorlákshöfn
70.5 m2
Fjölbýlishús
312
621 þ.kr./m2
43.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2023 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache