Domusnova og Ingunn Björg löggiltur fasteignasali kynna einstaklega fallega og vel skipulagða efri sérhæð með sérinngangi ásamt rúmgóðum bílskúr við Ölduslóð í Hafnarfirði. Inn af bílskúr er stúdíó íbúð sem tilvalin er til útleigu.
Eignin skiptist á eftirfarandi hátt: Forstofa, hol, stofa, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, bílskúr, stúdíoíbúð og sérgarður.
Skv. HMS er eignin samtals skráð 140,9 fm2. Þar af er íbúð 97,3 fm2 og bílskúr 43,7 fm2.
Virkilega góð staðsetning í göngufæri við miðbæ Hafnarfjarðar. Stutt í leikskóla, skóla og aðra þjónustu. Nánari upplýsingar veitir:Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.isLýsing eignar:
Forstofa: Flísar á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Rúmgott og bjart með gluggum á tvo vegu. Falleg innrétting með miklu skápaplássi og fínum borðkrók, ofn í vinnuhæð, helluborð með háfi fyrir ofan. Flísar á gólfi.
Stofa: Falleg og björt, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott herbergi inn af stofu, parket á gólfi, fataskápur.
Herbergi 2: Mjög rúmgott, parket á gólfi, fataskápur.
Herbergi 3: Rúmgott, parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, rúmgóð innrétting, ásamt innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Sturta, upphengt salerni.
Bílskúr: Mjög rúmgóður 43,7 fm2 bílskúr.
Studio íbúð: Inn af bílskúr hefur verið útbúið rými með með sérinngangi. Rúmgott herbergi, baðherbergi með innréttingu, sturtu og salerni. Mikil lofhæð. Gengið er inn í herbergið til hliðar til við bílskúrinn.
Verönd / garður: Sérgarður baka til við hús með fallegri verönd. Sérstæði fyrir framan bílskúr. Stimplað bílaplan.
Nánari upplýsingar veita:Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.