Hraunhamar fasteignasala kynnir: Vel skipulagða og þó nokkuð endurnýjaða þriggja herbergja íbúð með rúmgóðum svölum á 5. hæð í fjölbýlishúsi með lyftu við Engihjalli 19 í Kópavogi. Eignin er skráð 78,1 fm en til viðbótar er óskráð geymsla í kjallara og sameiginlegt þvottahús á hæðinni. Nánari lýsing eignar:Hol.
Gangur með fataskáp.
Björt stofa og borðstofa þar sem útgengt er á rúmgóðar svalir. Gott útsýni.
Eldhús með nýlegri innréttingu og tækjum. Bakaraofn í vinnuhæð.
Tvö svefnherbergi annað með fataskáp. Útgengt á svalir frá öðru herberginu.
Flísalagt baðherbergi með nýlegri innréttingu, upphengdu salerni og baðkari með sturtuaðstöðu.
Sameiginlegt þvottahús fyrir þrjár íbúðir á hæðinni.
Sér geymsla í sameign (ca 5 fm) sem er ekki í fm tölu eignarinnar.
Skv. upplýsingum frá seljanda var eftirfarandi framkvæmt árið 2022. Ný eldhúsinnrétting, tæki og vaskur
Nýir ofnar í stofu og herbergjum.
Skipt út öllu rafmagni úr ticino
Nýtt harðparket allsstaðar nema bað.
Nýir skápar í svefnherbergi og gangi.
Nýjar hurðar og byggt upp í gluggagat fyrir ofan.
Hurðagat breikkað
Ný innrétting, vaskur og skápur á baðherbergi
Nýtt upphengt klósett
Nýr sólbekkur í stofu
Geymslugólf skrapað upp og málað
2026 Ný lyfta í húsið
Nánari upplýsingar veitir Glódís Helgadóttir lgf. s. 659-0510 glodis@hraunhamar.isSkoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.