Fasteignaleitin
Skráð 2. okt. 2026

Birkimelur .

EinbýlishúsVesturland/Borgarnes-311
189.4 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
94.900.000 kr.
Fermetraverð
501.056 kr./m2
Brunabótamat
91.100.000 kr.
Byggt 2006
Pallur
Heitur pottur
Margir Inng.
Fasteignanúmer
22855381
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Margir inngangar

Aldir Fasteignir og Sigríður Lind Eyglóardóttir fasteignasali kynna í einkasölu Birkimel í Borgarbyggð. Einbýlishús með bílskúr. Húsið er 157,3 fm og bílskúr 32,1 fm. Samtals er eignin 189,4 fm og stendur á 2,6 hektara kjarri vaxinni eignarlóð.  Eignin er skráð sem einbýlishús á íbúðarhúsalóð þar má hafa lögheimili og njóta þar með allrar þjónustu sem sveitarfélagið býður upp á.  Húsið er timburhús frá Trésmiðjunni Akri Akranesi, byggt á steyptum sökkli, gólf er steinsteypt, klætt að utan með Steni klæðningu.  Vilyrði er fyrir byggingu á allt að 400 fm skemmu/vélageymslu á lóðinni samkvæmt samþykktu skipulagi.

** Bókið skoðun HÉR **

Nánari lýsing: 
Komið er inn í rúmgóða forstofu með góðum skápum, steinteppi á gólfi. Þaðan inn í stórt og bjart opið rými með aukinni lofthæð.  Eldhús er rúmgott, góð innrétting, mikið skápapláss, góð vinnuaðstaða, stæði fyrir uppþvottavél, tveir gluggar og góður borðkrókur. Stofa og borðstofa liggja saman, og úr borðstofu er gengið út á sólpall sem snýr í vestur, þar er heitur pottur. Stórkostlegt útsýni og mikil fjallasýn m.a að Snæfellsjökli sem blasir við úr pottinum.  Úr eldhúsi er gengið inn í rúmgott þvotthús með innréttingu og stæði fyrir þvottavél, þurrkara og kæliskáp. Innaf þvottahúsi er snyrting með nettri innréttingu. Úr þvottahúsi er útgengi út á bílastæði. Innangengt er í bílskúr í gegnum þvottahús. Bílskúr er með epoxy á gólfi, rafdrifin bílskúrshurð. Húsið er hitað með gólfhita með rafmagni og hitatúpu sem staðsett er í bílskúr.  Varmadæla sett 2025. 
Á svefnherbergisgangi eru 4 góð svefnherbergi öll með góðum fataskápum. Baðherbergi er með fallegri viðarinnréttingu, baðkar með sturtuaðstöðu, á veggjum eru Fibo Trespo plötur og flísar á gólfi. Handklæðaofn.  Á gólfum hússins er quickstep parket frá Harðviðarval og flísar.
 
Víðáttumikið útsýni til allra átta og rómuð náttúrufegurð. Birkimelur er staðsettur við Hítardalsveg, ca 20 mín akstur frá Borgarnesi, og þægilegri akstursfjarlægð frá Reykjavík og er landið umlukið margbrotnum náttúruperlum Borgafjarðar.  Einstakt tækifæri að búa við og njóta náttúru utan þéttbýlis. Um er að ræða vel byggt og fallegt fjölskylduhús á grónu eignarlandi með mikla möguleika af ýmsum toga.   Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind Eyglóardóttir fasteignasali, sigridur@aldirfasteignir.is / 8994703

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (41)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hátröð 1
Heitur pottur
Hleðslustöð
Opið hús:27. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hátröð 1
Hátröð 1
200 Kópavogur
181,4 m2
Einbýlishús
725
992 þ.kr./m2
179.900.000 kr.
Skoða eignina Hörgslundur 17
Heitur pottur
Skoða eignina Hörgslundur 17
Hörgslundur 17
210 Garðabær
179,4 m2
Raðhús
624
920 þ.kr./m2
165.000.000 kr.
Skoða eignina Rökkvatjörn 12
3D Sýn
Bílskúr
Hleðslustöð
Skoða eignina Rökkvatjörn 12
Rökkvatjörn 12
113 Reykjavík
205 m2
Raðhús
61
771 þ.kr./m2
158.000.000 kr.
Skoða eignina Klapparstígur 7
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Klapparstígur 7
Klapparstígur 7
260 Reykjanesbær
172,3 m2
Einbýlishús
514
540 þ.kr./m2
93.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin