Betri Stofan Fasteignasala og Guðbjörg Guðmundsdóttir, sími 899 55333, löggiltur fasteignasali, netfang: gudbjorg@betristofan.is kynna: Fallega og töluvert endurnýjaða 2ja herbergja íbúð á jarðhæð/kjallara í mikið endurnýjuðu húsi á frábærum stað miðsvæðis í Reyjavík. Gluggar íbúðar snúa allir frá götu inn í gróinn suðvesturgarð.
Íbúðin sem er skráð 55 fm. skiptist í forstofugang, eldhús, stofu, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.
Gengið er inn í parketlagðan forstofugang, með góðu fatahengi. Eldhúsið er rúmgott með nýlegri L-laga innréttingu, gott skápapláss, ljúflokanir á skúffum, innbyggð uppþvottavél, flísar á gólfi. Stofan er parketlögð. Úr stofu er gengið inn í svefnherbergið, sem er parketlagt og með fataskáp. Baðherbergið er flísalagt, gólf og veggir, góð innbyggð sturta, upphengt salerni og vaskur í innréttingu með skúffum.
Sameiginlegt þvottahús er við hlið íbúðar. Útgengt er úr þvottahúsi út í sameiginlegan garð til suð-vesturs garðurinn er fallega gróinn og með timburpalli.
Sérgeymsla íbúðar er inn af sameign, geymsla er skráð 1,3 fm. en er stærri að gólffleti þar sem hún er að hluta til undir stiga.
Húsið og íbúðin sjálf hafa fengið gott viðhald undanfarin ár.
Ytra byrði og sameign:2017 þak viðgert, skipt var um þakpappír og járn ásamt rennum meðfram húsi og þakgluggum á kvistum.
2019 ytra byrði hússins viðgert. Þakkantur lagfærður. Allir gluggar í húsinu voru yfirfarnir og skipt um karma og/eða gler eftir þörfum.
2020 húsið endursteinað.
2021 sameign teppalögð og máluð.
Íbúðin sjálf hefur verið töluvert endurnýjuð meðal annars nýtt eldhús og innihurðar 2018 og baðherbergi endurnýjað 2020. Einnig hafa ofnar íbúðar verið nýlega yfirfarnir.
Spennandi eign í hjarta Reykjavíkur sem hlotið hefur töluvert viðhald, tilvalin fyrstu kaup.Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Guðmundsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8995533, tölvupóstur gudbjorg@betristofan.is.