Fasteignaleitin
Skráð 23. júní 2026

Fálkahlíð 6

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
198.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
189.500.000 kr.
Fermetraverð
954.660 kr./m2
Brunabótamat
124.140.000 kr.
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
25056788
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

LANDMARK fasteignamiðlun og Sveinn Eyland, lögg. fasteignasali s: 6900 820 / sveinn@landmark.is kynna:
Um er að ræða stórglæsilega og vel skipulagða þriggja herbergja 198.5 fm íbúð á fimmtu/efstu hæð í nýju lyftufjölbýli miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu í Hlíðarenda hverfinu.
Aðeins eru  tvær íbúðir á hæðinni og er íbúð er með gólfsíðum gluggum, tvennum svölum, rúmgóðum bílskúr og sérmerktu stæði í lokaðri bílageymslu.
Aukin lofthæð, vönduð tæki í eldhúsi, vönduð blöndunartæki og vandaðar sérsmíðaðar innréttingar.

ÍBÚÐ GETUR VERIÐ LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.

**EIGENDUR SKOÐA SKIPTI Á SÉRBÝLI Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU**

Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúð er 141.1 fm merkt 06-05-02, sérgeymsla er 27.1 fm merkt 06-00-15 og bílskúr er 30.3 fm merktur 06-00-17 samtals 198.5 fm að stærð.
Að auki er stæði í bílgeymslu með íbúð merkt 12-E0-56.


Nánari upplýsingar um eign:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@landmark.is

FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.

Eignin skiptist í:
Forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, hjónaherbergi með fataherbergi og baðherbergi innaf, rúmgott barnaherbergi, aðal baðherbergi, þvottahús, sérgeymslu, bílskúr og stæðis í lokaðri bílageymslu.
Tvennar rúmgóðar svalir með íbúð til vesturs og austurs. 
Sameiginleg hjóla/vagnageymsla í kjallara.


Nánari lýsing á eign:
Komið er inn í rúmgóða forstofu með innbyggðum fataskápum, aukin lofthæð er í allri íbúðinni.
Herbergjagangur er rúmgóður en gengið er úr honum í önnur rými íbúðar og í enda gangs er útgengt á vestur-svalir.
Borðstofa, stofa og eldhús eru í opnu og björtu rými með gólfsíðum gluggum og er útgengi á svalir sem snúa til suð-austurs úr stofu.  
Eldhús er opið inní borðstofu og stofu, eldhús er með vönduðum sérsmíðuðum dökkum innréttingum frá HBH, KVARZ steinplötur frá Fígaró á borðplötu eldhúsinnréttingar, á eldhúseyju er helluborð með fallegum háf yfir og skilur eyja af eldhús og borðstofu.
Vönduð innbyggð tæki í eldhúsi ísskápur með frysti, uppþvottavél og vínskápur.
Hjónasvítan er stór og björt, fataherbergi með vönduðum innréttingum sem ná upp í loft.
Baðherbergi sem er innaf hjónaherbergi er flísalagt í hólf og gólf, Walk-in sturta, snyrtileg innrétting með skúffum og hillum undir vask, speglaskápur á vegg, upphengt salerni og handklæðaofni.
Útgengi er úr hjónasvítu á vestur-svalir sem snúa inn í fallegan inngarð. 
Barnaherbergi er rúmgott með góðum fataskáp sem nær upp í loft. 
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, snyrtilegri innréttingu með skúffum og hillum undir vask, speglaskápur á vegg, upphengt salerni og handklæðaofni, Walk-in sturta.
Þvottaherbergi er verulega snyrtilegt með innréttingu undir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, borðplata með skolvaski.
Gólfefni: Vandað parket og flísar á gólfum íbúðar.

Í bílgeymslu er bílskúr 30.3 fm og er inngengt úr bílskúr í 27.1 fm sérgeymslu íbúðar og úr geymslunni er hurð inní á gang og er lyfta húseignar þar í sameigninni.
Sérmerkt stæði er í bílgeymslu búið er að leggja fyrir rafhleðslustöð í bílastæði.
Sameiginlegur inngarðurinn er til vesturs við húseign og er hann skjólgóður með góðri lýsingu, bekkjum og leiksvæði fyrir börn.


-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@landmark.is

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
http://www.landmark.is

Myndir (37)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Silfursmári 2
Bílastæði
Skoða eignina Silfursmári 2
Silfursmári 2
201 Kópavogur
116 m2
Fjölbýlishús
312
Fasteignamat 98.500.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Njálsgata 49
Skoða eignina Njálsgata 49
Njálsgata 49
101 Reykjavík
106.5 m2
Fjölbýlishús
312
797 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Mosagata 11
Bílastæði
Skoða eignina Mosagata 11
Mosagata 11
210 Garðabær
108 m2
Fjölbýlishús
4
879 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Lynggata 2
Bílastæði
Skoða eignina Lynggata 2
Lynggata 2
210 Garðabær
93.4 m2
Fjölbýlishús
312
845 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin