Fasteignaleitin
Skráð 1. nóv. 2024

Imbuvík 2A

Nýbygging • ParhúsVesturland/Stykkishólmur-340
114 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
68.300.000 kr.
Fermetraverð
599.123 kr./m2
PK
Pétur Kristinsson
Lögmaður/löggiltur fasteignasali
Byggt 2025
Pallur
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2335978
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
timbur
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
100
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
114 fm. íbúð með innbyggðum bílskúr sem til stendur að byggja á lóðinni Imbuvík 2, Stykkishólmi.
 
Íbúðin afhendist í samræmi við neðangreinda lýsingu:
 
ALMENN LÝSING:
 
Parhús með staðsteyptum sökklum, staðsteypt gólfplata, krosslímdar timbureiningar í veggi og þak, einangrað og klætt með steinplötum t.d. Cembrit. Byggingin er í notkunarflokki 3.
 
íbúð 100.1m² Forstofa, stofa og eldhús í alrými, tvö svefnherbergi, baðherbergi og bílskúr,þvottahús og geymsla saman. Gólfsíðir gluggar eru í öllum rýmum íbúðar.
 
Íbúðirnar skilast fullbúnar  (samkvæmt skilaslýsingu, nema um annað sé samið) nema að lóð verður grófjöfnuð og án veranda, skjólveggur á milli húsa er steyptur. Aðkoma og bílastæði eru með möl, engin snjóbræðsla er á lóð.
 
Forstofa er með flísum og fataskáp, opið er frá forstofu inn í alrými.
Alrými, stofa og eldhús er í opnu rými með útgengi út. Loft eru tekinn upp í alrýminu og er harðparket á gólfum. Innfeld lýsing þar sem það á við í t.d. Meister loftapanil. Eldhúsinnrétting er frá Ikea. Í innréttingu fylgir helluborð og ofn.
Svefnherbergi eru skilað án fataskápa en parket á gólfum, Meister loftapanil í loftum.
Baðherbergi er flísalagt gólf og inn í sturtu, gler aðskilur sturtu á einni hlið. Blönundartæki og sturtuhaus utan á. Veggir eru Fibo útlitsgerð F05 hvítar.
 
Imbuvík er staðsett í nýju hverfi í Stykkishólmi, svokölluðu Víkurhverfi sem er austan við bæinn og eru um 500m í þjónustu eins og skóla, íþróttahús, sundlaug og matvöruverslun. Hverfið liggur með strandlengju Breiðarfjarðar þar sem áætlað er að leggja göngustíga svo hægt sé að njóta náttúrunar sem Breiðafjörður bíður upp á. Víkurhverfið liggur upp að golfvelli Stykkishólmsbæjar og verður um 400-500m gönguleið að þjónustuhúsi golfvallar.
 
GERÐ OG KLÆÐNING ÞAKS, FRÁGANGUR ÚTVEGGJA, GERÐ ÚTVEGGJA KLÆÐNINGA, GLUGGA, HURÐA OG LITAVAL HÚSS:
 
UNDIRSTÖÐUR OG BOTNPLATA:
Undirstöður eru staðsteyptar sem hvíla á vel þjappaðri frostfrírri fyllingu. Botnplata er staðsteypt, einangrað er undir alla botnplötuna með 100mm EPS-einangrun. Utan á sökkla kemur 75mm EPS-einangrun.
 
ÚTVEGGIR:
Útveggir eru Krosslímdar timbureiningar og 100mm harðpressuð steinullar einangru, loftbil og klætt með t.d. cembrit plötum.
 
ÞAKVIRKI:
Þak er krosslímd timbur burðarvirki, þakpappi, einangrað með 160mm (undirlagsplata 120mm og yfirlagsplata 40mm) steinull og svo tvöfalt lag af þakpappa með trékantlistum á yfirborði. Að innan er lagnagrind í loftum og loftaefni í flokki 1, t.d. Meister loftapanil.
 
GLUGGAR OG HURÐIR: Gluggar og hurðir eru tré, tvöfalt einangrunargler er í gluggum með sólstoppi. Gler er Top N+ einangrunargler, eða sambærilegt. Bílskúrshurð er hefðbundin flekahurð með opnara.
 
VERÖND: Búið að skipta um jarðveg undir verönd.
 
EINANGRUN: Sjá liði ofar.
 
INNVEGGIR OG INNIHURÐAR:
 
INNVEGGIR:
Léttir innveggir eru krosslímdar timbureiningar, klæddir með gifsi, spartlað og málað, Baðherbergi klætt td. með Fibo útlistsgerð FO5 hvítar
 
INNIHURÐAR:
Hefðbundnar timburhurðar yfirfeldar td. Ringo hvítar.
 
Innréttingar: Eldhús innrétting samkvæmt teikningu. Ofn og helluborð innifalið. Baðinnrétting (140 cm). Frá Ikea.
 
Gólfefni: Flísar á baði. Harðparket á gólfum. Gólf í bílskúr flotað
 
Loftaklæðning: Meister loftapanill frá Þ. Þorgrímsson, eða sambærilegt.
 
LAGNALEIÐIR, UPPHITUN OG LOFTRÆSING:
 
LOFTRÆSING: Loftræsing rýma er út um oppnanlega glugga.  Enginn aflokuð rými eru í húsinu sem þurfa vélræna loftræsingu.
 
LAGNIR: Húsið er hitað upp með gólfhitalögn. Neysluvatnslagnir eru rör í rör og koma í gólf og milliveggi. Raflagnir eru lagðar á hefðbundinn hátt í veggjum og í lofti. Rofar og tenglar hvítir
 
VATNSÖFLUN: Húsið tengist vatnsveitu svæðisins.
 
FRÁVEITA: Fráveita tengist kerfi Stykkishólmsbæjar.
 
BRUNAMÁL OG FLÓTTALEIÐIR: Björgunarop eru út um útihurðir og út um björgunarop á gluggum í herbergjum.
 
HLJÓÐVISTARKRÖFUR: Ekki eru sérstakar hljóðvistarkröfur nema á milli íbúða 55dB samkvæmt ÍST 45:2016. Veggur á milli íbúða verður steyptur.
 
LÓÐ: Lóð jöfnuð og tyrftð. Búið að efnisskipta í bílastæði og möl í yfirlag.
 
AÐGENGISMÁL: Íbúðir eru aðgengilegar eins og hægt er, þröskuldar á útidyrahurð og hurðum út í garð er ekki hærri en 2.5cm og þröskuldar eru á innihurðum eru felliþröskuldar, í eldvarnarhurðum þar eru þröskuldar sem uppfylla eldvarnarkröfur. Auðvelt er að breyta íbúðinni svo hún uppfylli algilda hönnun með óverulegum breytingum á innréttingum og léttum veggjum ef á þarf að halda.
 
SORPHIRÐA: Sorpaðstaða fyrir 4 tunnur til flokkunar eru á lóð. 

Innfalin eru öll gjöld tengd byggingu hússins önnur en skipulagsgjald sem greiðist þegar endanlegt brunabótamat liggur fyrir. Gjaldið er 0,3% af brunabótamati. 
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (8)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Furugrund 79
Opið hús:06. ágúst kl 17:30-18:15
Furugrund 79.png
Skoða eignina Furugrund 79
Furugrund 79
200 Kópavogur
98.7 m2
Fjölbýlishús
514
805 þ.kr./m2
79.500.000 kr.
Skoða eignina Stekkjarhvammur 26
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Stekkjarhvammur 26
220 Hafnarfjörður
115.7 m2
Hæð
312
777 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 17,íb.503
Bílastæði
Efsta hæð
Hringhamar 17,íb.503
221 Hafnarfjörður
97.7 m2
Fjölbýlishús
312
849 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Vallarhús 14
Opið hús:06. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Vallarhús 14
Vallarhús 14
112 Reykjavík
120.2 m2
Fjölbýlishús
514
711 þ.kr./m2
85.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin