Fasteignaleitin
Skráð 13. júlí 2026

Sunnusmári 23

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
79.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
72.990.000 kr.
Fermetraverð
921.591 kr./m2
Brunabótamat
50.350.000 kr.
Byggt 2020
3. hæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
25072904
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Böðvar Sigurbjörnsson og Borg fasteignasala kynna til sölu: Sunnusmári 23, 201 Kópavogi – fallega og bjarta 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í nýlegu lyftuhúsi með rúmgóðum suðaustursvölum. Eignin, sem er merkt 02-0302, er skráð 79,2 m², þar af er sérgeymsla 9,6 m².
Nánari lýsing – íbúð 302
Forstofa/anddyri: Parket á gólfi og innbyggður fataskápur.
Baðherbergi: Flísalagt gólf og flísar á veggjum að hluta. Flísalögð sturta með glerskilrúmi. Vönduð AXIS baðherbergisinnrétting neðan handlaugar og speglaskápur með lýsingu fyrir ofan. Gólfhiti og handklæðaofn. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með parketi á gólfi og fataskápum sem ná upp í loft.
Barnaherbergi: Parket á gólfi.
Eldhús: Vönduð AXIS eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi, bæði efri og neðri skápum. Parket á gólfi. Innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur. Gorenje spanhelluborð og vifta fyrir ofan. Hljóðeinangrunarplata í lofti.
Stofa: Opin og björt stofa með parketi á gólfi og tveimur hljóðeinangrunarplötum í lofti. Um er að ræða horníbúð sem tryggir glugga á tvo vegu og einstaklega gott birtuflæði í stofu og önnur rými. Frá stofu er útgengt út á rúmgóðar suðaustursvalir.

Annað: Í sameign hússins er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Húsið er byggt árið 2020 og klætt að utan með álklæðningu, sem á að gera bygginguna viðhaldslitla. Eignin er staðsett í vinsælu og fjölskylduvænu hverfi í Smárahverfi Kópavogs, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Í næsta nágrenni eru Smáralind og Smáratorg með fjölbreyttri verslun, þjónustu, mathöll, veitingastöðum og afþreyingu. Einnig er stutt í leikskóla, grunnskóla, heilsugæslu og íþróttasvæði ásamt góðum göngu- og hjólaleiðum. Gott aðgengi er að helstu samgönguæðum sem tengja hverfið við aðra hluta höfuðborgarsvæðisins.

Nánari upplýsingar veitir Böðvar Sigurbjörnsson, lögfræðingur M.L. og lgf., í síma 660-4777 eða bodvar@fastborg.is
Sjá einnig:
fastborg.is/
Smelltu hér til að fylgjast með mér á Facebook
Smelltu hér til að fylgja mér á Instagram


Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (18)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sóleyjarimi 7
Skoða eignina Sóleyjarimi 7
Sóleyjarimi 7
112 Reykjavík
61 m2
Fjölbýlishús
211
982 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Tjarnabraut 16
Skoða eignina Tjarnabraut 16
Tjarnabraut 16
260 Reykjanesbær
100.5 m2
Fjölbýlishús
413
596 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Iðufell 4
Efsta hæð
Opið hús:23. júlí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Iðufell 4
Iðufell 4
111 Reykjavík
83 m2
Fjölbýlishús
312
625 þ.kr./m2
51.900.000 kr.
Skoða eignina Snæland 2
Hleðslustöð
Skoða eignina Snæland 2
Snæland 2
108 Reykjavík
98 m2
Fjölbýlishús
413
877 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin