Fasteignaleitin
Opið hús:19. nóv. kl 17:00-17:30
Skráð 16. nóv. 2026

Nesvegur 66

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vesturbær-107
45.7 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
53.900.000 kr.
Fermetraverð
1.179.431 kr./m2
Brunabótamat
25.200.000 kr.
Byggt 1949
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20245581
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Aldir fasteignir og Sigurður Samúelsson Lgf  | ss@aldirfasteignir.is kynna:

Smekkleg og vel skipulögð 2ja herbergja 45,7 fm íbúð á efstu hæð / risi á vinsælum stað í Vesturbæ Reykjavíkur.  Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð, en hún er að hluta til undir súð og nýtanlegri fermetrar því fleiri en birt stærð segir.

Gengið er inn um sameiginlegan inngang á 1. hæð upp stiga upp á 2. hæð þar sem íbúðin er.
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Stofan er með nýlegu parketi á gólfi og fallegu útsýni úr stofuglugga til suðurs.
Svefnherbergið er nokkuð rúmgott með fataskáp og nýlegu parketi á gólfi.
Baðherbergið var tekið í gegn s.l. sumar og er með flísalagt gólf, sturtu, fallegri innréttingu og tengi fyrir þvottavél.
Eldhúsið er með eldri innréttingu og flísum á gólfi.

Í sameign í kjallara er sameiginlegt þvottahús og geymsluskápur sem þessi íbúð nýtir.

Frábær staðsetning þar sem stutt er í  Melabúðina, Kaffi Vest, Vesturbæjarlaugina og gönguleiðir meðfram Ægisíðunni svo það helsta sé nefnt.

Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða ss@aldirfasteignir.is
---------------------------------------------------------

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Aldir fasteignir bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (26)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hnjúkamói 9 íbúð 205 HLUTDEILDARLÁN
Hnjúkamói 9 íbúð 205 HLUTDEILDARLÁN
815 Þorlákshöfn
50 m2
Fjölbýlishús
211
910 þ.kr./m2
45.500.000 kr.
Skoða eignina Hnjúkamói 9 íbúð 204 HLUTDEILDARLÁN
Hnjúkamói 9 íbúð 204 HLUTDEILDARLÁN
815 Þorlákshöfn
60,3 m2
Fjölbýlishús
211
846 þ.kr./m2
51.000.000 kr.
Skoða eignina Frakkastígur 8E (201)
Friðjón_vefur (10).jpg
Frakkastígur 8E (201)
101 Reykjavík
113,5 m2
Fjölbýlishús
312
924 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Lágaleiti 1 (206)
Friðjón_vefur (15).jpg
Lágaleiti 1 (206)
103 Reykjavík
62,6 m2
Fjölbýlishús
211
1078 þ.kr./m2
67.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin