Fasteignaleitin
Opið hús:15. nóv. kl 14:30-15:00
Skráð 10. nóv. 2026

Eskiás 2

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
83 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
74.900.000 kr.
Fermetraverð
902.410 kr./m2
Fasteignamat
73.100.000 kr.
Brunabótamat
49.700.000 kr.
Mynd af Ragnar Kristján Guðmundsson
Ragnar Kristján Guðmundsson
Fasteignasali
Byggt 2022
2. hæð af 3
Garður
Svalir
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2520037
Landnúmer
231026
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
09
Vatnslagnir
Nýlegt Bygg.ár 2022
Raflagnir
Nýlegt Bygg.ár 2022
Frárennslislagnir
Nýlegt Bygg.ár 2022
Gluggar / Gler
Nýlegt Bygg.ár 2022
Þak
Nýlegt Bygg.ár 2022
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðursvalir
Upphitun
Ofnar. Bygg.ár 2022
Inngangur
Sérinngangur
Ragnar lgf. S: 844-6516 hjá TORG fasteignasölu kynnir: Gullfallega nýlega 3ja herbergja íbúð með sérinngangi merkt 209 á 2. hæð að Eskiás 2H í Ásahverfi Garðabæjar. 
Um er að ræða eign sem er skráð 83,0 fm. og skiptist í forstofu/anddyri, rúmgott alrými
sem rúmar eldhús, stofu og borðstofu, 2 svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymslu innan íbúðar.
Frá borðstofu er útgengt á svalir. Allar innréttingar í eldhúsi eru frá þýska framleiðandanum Nobilia og fataskápar koma frá Trésmiðju GKS.
Göngufæri er í leik- og grunnskóla, verslanir, veitingahús, sundlaug og alla helstu þjónustu. Einnig er stutt í góða og vel skipulagða göngu- og hjólastíg við sjávarsíðuna og Gálgahrauninu. 
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Ragnar Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í síma 844-6516 / ragnar@fstorg.is

Nánari lýsing:
Forstofa/anddyri: Komið er inn í rúmgóða forstofu með harðparketi á gólfi og háum hvítum þreföldum fataskáp.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott hjónaherbergi búið vönduðum sérsmíðuðum hvítum háum fataskápum. Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi: Að auki hjónaherbergis er annað svefnherbergi með harðparketi á gólfum. Búin hvítum háum fataskápum.
Alrými: Rúmgott alrými sem rúmar eldhús, stofu og borðstofu. Frá alrými er útgengt á svalir. Harðparket á gólfi.
Eldhús: Falleg ljósgrá innrétting með steingrárri borðplötu. Búin efri- og neðri skápum með ljúflokun, blástursofni í vinnuhæð, spanhelluborði, innbyggðum ísskáp og tengi fyrir uppþvottavél. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, með innbyggðri lýsingu í lofti, hvítri innréttingu með ljúflokun á neðri skúffum, heilsteyptri handlaug í borðplötu,
LED lýstum spegli á vegg, upphengdu salerni, handklæðaofni (Stormberg Laveno), sturtu með hertu gleri og þvottaaðstöðu með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Hvíttað glerskilrúm stúkar af þvottavél og þurrkara. Öll hreinlætistæki eru frá Grohe. 
Geymsla: Sérgeymsla er innan íbúðar. Í sameign er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Rafbílahleðsla á sameiginlegum bílastæðum.

Nýleg og skemmtileg eign þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, miðbæ Garðabæjar og alla helstu þjónustu ásamt því að vera í göngufæri við Ásgarðslaug (sundlaug Garðabæjar), og aðrar fallegar gönguleiðir meðfram sjávarsíðunni og Gálgahrauninu ásamt því að stutt er í almenningssamgöngur. Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Ragnar Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í síma 844-6516 ragnar@fstorg.is

Áætluð gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign (Getur breyst):
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
09/10/202360.900.000 kr.69.000.000 kr.83 m2831.325 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (30)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eskiás 7D íb209
Efsta hæð
Opið hús:11. nóv. kl 17:00-17:30
Eskiás 7D íb209
210 Garðabær
102,7 m2
Fjölbýlishús
514
953 þ.kr./m2
97.900.000 kr.
Skoða eignina Eskiás 7A íb204
Efsta hæð
Opið hús:11. nóv. kl 17:00-17:30
Eskiás 7A íb204
210 Garðabær
102,3 m2
Fjölbýlishús
514
957 þ.kr./m2
97.900.000 kr.
Skoða eignina Norðurbrú 5
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Norðurbrú 5
Norðurbrú 5
210 Garðabær
79,9 m2
Fjölbýlishús
211
975 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Lyngás 1A
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Lyngás 1A
Lyngás 1A
210 Garðabær
82,5 m2
Fjölbýlishús
312
884 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin