Elka lgf. s. 863-8813 hjá Fasteignasölunni TORG kynnir jörðina Svarðbæli í Miðfirði, Húnaþingi vestra.Jörðin er í eyði í dag, alls 417 hektarar, með eldra íbúðarhúsi. Fallegt eyðibýli með sterka sögu og mikið útsýni.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.Svarðbæli er talið hafa byggst fyrir árið 1700 og var um aldir kirkjujörð og var þinghús hreppsins um tíma staðsett í Svarðbæli.
Bærinn stendur mjög hátt og er víðsýnt í allar áttir og sést þar yfir stóran hluta Miðfjarðar og nærliggjandi byggðir.
Á jörðinni stendur fallegt gamalt íbúðarhús, byggt árið 1936. Húsið er reisulegt og sjarmerandi, verulega illa farið en með mikla möguleika fyrir þá sem leita að endurgerðarverkefni, hvort sem hugmyndin er að skapa sveitasetur, sumarhús eða athvarf í fallegri náttúru.
Nálægð við Hvammstanga gerir staðsetninguna áhugaverða – enda stutt í alla þjónustu.
Með því að smella hér er hægt að sjá myndband af eigninni, tekið af Hjörleifi Jóhannessyni.Smellið hér til að sjá staðsetninguHeildarstærð jarðar: 417 hektarar
Ræktað land er skráð 4,6 hektarar
Íbúðarhús: 87,9 m², byggt árið 1936 (lélegt/ónýtt)
Rafmagn liggur að húsinu en ekki vatn.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.