Fasteignaleitin
Skráð 31. júlí 2026

Austurbrú 2

FjölbýlishúsNorðurland/Akureyri-600
53 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
Verð
55.900.000 kr.
Fermetraverð
1.054.717 kr./m2
Brunabótamat
60.370.000 kr.
Byggt 2017
2. hæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
23599761
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Nordik fasteignasala kynnir eignina Austurbrú 2, 600 Akureyri
- Hafðu samband í síma 4621212 eða í tölvupósti á nordik@nordikfasteignasala.is -


Austurbrú 2 er 53 fm. íbúð á annarri hæð, auk bílastæðis í bílakjallara, í fjölbýlishúsi með lyftu í miðbæ Akureyrar.  Falleg fasteign með útsýni út Eyjafjörðinn. Gengið er inn í stigahús og lyfta tekin upp á 2 hæð. Þar er gengið út á opinn stigagang og inn í íbúðina. Gengið er inn í gang og þaðan inn í svefnherbergi með góðum fataskáp, baðherbergi með innangenginni sturtu og í opna sambyggða stofu og eldhús. Úr stofunni er gengið út á svalir. 

Íbúðin er á frábærum stað í nýlegu húsi í miðbæ Akureyrar. Sér bílastæði fylgir og er í bílastæðahúsi undir húsinu. 

Nánari lýsing:
Forstofa: Harðparket á gólfi og spónlagður eikarskápur. 
Svefnherbergi: Harðparket  á gólfi, góður spónlagður eikarskápur, með hæglokandi skúffum að hluta.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og í inngenginni sturta. Björt, hvít, innrétting. Handklæðaofn.
Stofa/eldhús: Sambyggð stofa og eldhús. Tvískipt eikar og hvít innrétting. Gengið út á steyptar svalir sem snúa til norðurs.
Bílakjallari: Hægt að komast að bæði með lyftu og stiga. Sér bílastæði fylgir eigninni.

Annað: 
- Er á góðum stað í miðbæ Akureyrar og nýtur alls þess góða sem þar er að finna án þess að verða fyrir miklum beinum áhrifum lífi í bænum.
- Austurbrú 2-4 var reist árið 2017 og var vandað til verka við reisningu hússins.
- Mynddyrasími er í eigninni.
- Innfelld lýsing í eigninni allri.
- Hæglokun er í öllum skúffum.
- Snjóbræðsla í bílageymslurampi.
- Húsið er upphitað með Rehau gólfhitakerfi, hitastillir er í hverju herbergi.
- Pottrör eru í skólplögnum með tilliti til hljóðvistar.
- Hljóðeinangrunargler er í öllum gluggum.
- Vönduð og eiguleg eign.
 
Nánari upplýsingar veitir
Andres Már Magnússon lögmaður og lögg. fasteignasali, í síma 4621212 eða í tölvupósti á nordik@nordikfasteignasala.is


​​​​​​Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Nordik fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Nordik fasteignasala
primalogmenn.is

Myndir (20)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Davíðshagi 8 íbúð 205
Davíðshagi 8 íbúð 205
600 Akureyri
40.3 m2
Fjölbýlishús
11
960 þ.kr./m2
38.700.000 kr.
Skoða eignina Bolholt 9
Bílastæði
Skoða eignina Bolholt 9
Bolholt 9
105 Reykjavík
72.9 m2
Fjölbýlishús
211
1084 þ.kr./m2
79.000.000 kr.
Skoða eignina Bolholt 9
Bílastæði
Skoða eignina Bolholt 9
Bolholt 9
105 Reykjavík
68.2 m2
Fjölbýlishús
211
1070 þ.kr./m2
73.000.000 kr.
Skoða eignina Bolholt 9
Bílastæði
Skoða eignina Bolholt 9
Bolholt 9
105 Reykjavík
72.9 m2
Fjölbýlishús
211
1056 þ.kr./m2
77.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin