Fasteignaleitin
Skráð 28. maí 2026

Jöfursbás 3B íb 103

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
86 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
83.900.000 kr.
Fermetraverð
975.581 kr./m2
Mynd af Agnar Agnarsson
Agnar Agnarsson
Löggiltur Fasteignasali
Geymsla 6.4m2
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2541010
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
6
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
0103
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
sér-afnotaflötur
Lóð
0,45
Upphitun
Hitaveita gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Kvöð / kvaðir
Fasteignasali á Domusnova Fasteignasölu á óbeinan hlut í félaginu sem selur
Domusnova kynnir: Glæsilegar, nýjar, vel hannaðar og fallegar íbúðir við strandlengjuna í Gufunesi.  Íbúðir í fjölbreyttum stærðum og gerðum frá 42-170 fm, margar með fallega sjávarsýn og útsýni til fjalla. Mikil nánd við náttúruna og hafið. Kappkostað hefur verið við að skipulag íbúða sé með besta móti, þar sem hver fermetri nýtist vel. Fullbúnar íbúðir, hannaðar af innanhúshönnuðum með fallegum sérsmíðuðum innréttingum, vönduðum gólfefnum og tækjum.  
 
  • Aukin lofthæð í flestum íbúðum - Mikið um gólfsíða glugga
  • Sérsmíðaðar innréttingar sem ná til lofts - Innbyggður ísskápur og uppþvottavél
  • Quartz steinn á borðplötum - Undirlímdir vaskar
  • Vandað efnisval í tækjum og gólfefnum - Hiti í öllum gólfum
  • Sjávar eða fjallasýn úr mörgum íbúðum - Rúmgóðir inngarðar með skemmtilegum leiktækjum
  • Afar snyrtileg og glæsilega hönnuð lóð með fallegri kvöldlýsingu - Spennandi umhverfisskipulag í tengslum við náttúruna
  • Snjóbræðslukerfi í göngustígum með fallegri næturlýsingu - Áhersla á birtu, útsýni og græn sameiginleg svæði

Þessi íbúð – Jöfursbás 3B 0103
Íbúðin er 3ja herbergja með sér inngangi samtals 86 fm þar af geymsla 6,4 fm. Stór sér-afnotaflötur 21,6 fm sem snýr til austurs. Gluggar á tvo vegu. Bílastæði í bílakjallara merkt B22 fylgir eigninni ásamt sér geymslu merkt 0025 í sameign.  Aukin lofthæð er í íbúðinni eða um 280 cm. ATH Myndir úr íbúð eru tölvuteiknaðar og kunna að vera af öðrum íbúðum hússins.
Forstofa rúmgóð með innbyggðum fataskáp. 
Eldhús opið inn í stofu með fallegri L-laga innréttingu sem nær til lofts. Innrétting er sérsmíðuð frá VOKE III með quartz stein á borðplötu. Eldhústæki frá AEG. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél.
Borðstofa / stofa björt með góðum glugga,  samtengd eldhúsi og útgegnt á 21,6 fm sér-afnotaflöt.  
Baðherbergi flísalagt gólf og hluti veggja.  Vönduð innrétting með quartz borðplötu. Tenging fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu á baði. Blöndunartæki frá Grohe.
Svefnherbergi #1 er mjög rúmgott með stórum fataskáp sem nær til lofts.
Svefnherbergi # 2 er með vönduðum fataskáp sem nær til lofts.
Bílastæði í lokuðum bílakjallara fylgir íbúðinni.
Geymsla á sér geymslugangi í kjallara hússins
Hjóla-og vagnageymsla í kjallara
Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl
Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar

Nánar um verkefnið og íbúðir á heimasíðu verkefnisins

Hverfið í hjarta náttúrunnar:
Staðsett við fallega vogskorna ströndina með einstöku útsýni, strendur með svörtum og gylltum sandi, fuglalíf og útsýni yfir Geldinganes, Viðey, Esju og miðborgina. 
Í Gufunesi er iðandi mannlíf, veitingastaður, glæsileg gyllt strönd þar sem hægt er að slaka á í fargufu, þeysast um sundin blá á sæþotu eða njóta útivistar á kajak. 
Stærsta kvikmyndaver Evrópu er staðsett í Gufunesi og þar er að byggjast upp líflegt samfélag skapandi greina. 

Í næsta nágrenni má finna alla helstu þjónustu, hvort sem það er verslun, grunnskólar, leikskólar eða íþróttamannvirki. Í Spönginni eru m.a. matvöruverslanir, veitingastaðir, vínbúð, bókasafn, apótek, heilsugæsla, menningarmiðstöð og tónlistarskóli.  Stutt er í Vættaskóla sem er grunnskóli og Borgarholtsskóla sem er framhaldsskóli. Golfvellir eru skammt undan.


Sjá nánar skilalýsingu íbúða HÉR

Nánari upplýsingar veita:
Ingunn B. Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s. 856-3566/ ingunn@domusnova.is
Víðir Arnar Kristjánsson löggiltur fasteignasali / s. 854-2226 / vidir@domusnova.is
Vilborg Gunnarsdóttir löggiltur fasteignasali / s. 891-8660 / vilborg@domusnova.is
Vera Sigurðardótttir löggiltur fasteignasali / s. 866 1110 / vera@domusnova.is
Agnar Agnarsson löggiltur fasteignasali / s. 820-1002 / agnar@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
6.4 m2
Fasteignanúmer
2541010

Myndir (9)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Krummahólar 10
Bílskúr
Skoða eignina Krummahólar 10
Krummahólar 10
111 Reykjavík
116.6 m2
Fjölbýlishús
413
641 þ.kr./m2
74.700.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 3B íb 203- HLUTDEILDARLÁN
Jöfursbás 3B íb 203- HLUTDEILDARLÁN
112 Reykjavík
54.4 m2
Fjölbýlishús
211
1046 þ.kr./m2
56.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 3B íb 106
Jöfursbás 3B íb 106
112 Reykjavík
102 m2
Fjölbýlishús
423
940 þ.kr./m2
95.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 3B íb 105
Jöfursbás 3B íb 105
112 Reykjavík
90.2 m2
Fjölbýlishús
312
941 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin