Fasteignasala Grafarvogs kynnir Urðarbrunn 112 Virkilega glæsilegt og vel skipulagt 205,8 fermetra parhús á tveimur hæðum í útjaðri byggðarinnar í Úlfarsárdal.
Íbúðarhluti hússins er 182,4 fermetrar og bílskúrinn 22,4 fermetrar.
Húsið verður afhent fullbúið að utan. Afhending er áætluð einum mánuði eftir kaupsamning.
Skipulag hússins er eftirfarandi:
Efri hæð
Gengið er inn í rúmgóða forstofu. Úr forstofunni er innangengt í bílskúrinn. Gestasnyrting er á gangi inn af forstofunni.
Á hæðinni er stórt alrými sem skiptist í stofu, borðsofu og eldhús. Aukin lofthæð er á hæðinni. Gert er ráð fyrir að allar innihurðar séu í aukinni hæð og fylgi gluggalínu.
Úr stofunni er útgengt út á rúmgóðar svalir með glerhandriði. Stórir gluggar eru á tvo vegu og er útsýnið af hæðinni stórkostlegt yfir ósnortna náttúru.
Á milli hæða er steyptur stigi.
Neðri hæð
Á neðri hæðinni eru fjögur svefnherbergi, þrjú tæplega 10 fermetra barnaherbergi og ein stór hjónasvíta með fataherbergi og sérbaðherbergi með wallk in sturtu. Á aðalbaðherberginu á hæðinni er gert ráð fyrir walk in sturtu. Í miðrými er stórt sjónvarpsherbergi. Gott þvottaherbergi er fyrir innan sjónvarpsherbergið. Á hæðinni er útgengt út á skjólgóðan pall og þaðan í garðinn. Í garðinum er náttúrugróður og gert ráð fyrir heitum potti, lagnir eru til staðar.
Smellið á
HÉR fyrir 360 gráðu myndir af húsinu
Nánari lýsing
Húsið er einangrað að utan með 100 mm steinull og klætt með álklæðningu frá Áltak.
Álklæddir timburgluggar frá Berki eru í húsinu.
Þakið er einhalla, viðsnúið, með tvöföldu lagi af pappa og einangrun.
Timburskjólveggur er á lóðamörkum milli íbúða.
Ídráttarrör fyrir heitan pott ásamt frárennsli hefur verið lagt út fyrir pall.
Plan fyrir framan bílskúr verður hellulagt með Rómarsteini frá BM Vallá. Snjóbræðsla er í öllu plani fyrir framan hús.
Bílskúrshurð er með bílskúrshurðaropnara.
Í garðinum sem er fullfrágenginn er timburpallur ásamt náttúrulegum mosagróðri sem nær yfir allan láréttan flöt.
Allir léttir innveggir verða komnir upp samkvæmt teikningum. Að innan verða allir veggir spartlaðir og grunnaðir.
Inntök verða komin inn í húsið
Búið verður að draga fyrir öllur rafmagni og verður húsinu skilað með vinnulýsingu.
Búið verður að leggja gólfhitalagnir og neysluvatnslagnir. Gólfhitalögn er afhent tengd en án stýringa og hitanema.
Anhydrít verður komið á báðar hæðir
Bílskúrsplatan verður röraslödduð
Ídráttarrör fyrir heitan pott verða komin og verða lögð frá bílskúr og út í garð.
Frárennsli fyrir heitan pott verður klárt samkvæmt teikningu.
Húsið verður fullbúið að utan.
Allar breytingar sem kaupendur óska eftir frá þeirri lýsingu sem er hér að ofan er á kostnað kaupenda
Kaupendur greiða skipulagsgjald þ.e 0,3% af endanlegu brunabótamati þegar það verður lagt á.
Ath. Inni og útimyndir eru tölvuteiknaðar og eru til glöggvunar en sýna ekki endanlegan frágang eignarinnar.
Nánar um skil má sjá í skilalýsingu hér að ofan.
Þetta er einstaklega vel skipulagt og fallegt hús sem vert er að skoða!
Vantar allar gerðir eigna á skrá, persónuleg og góð þjónusta.
Nánari upplýsingar gefur:
Jósep Grímsson löggiltur fasteignasali
Fasteignasalan Grafarvogi
S: 863-1126
josep@fastgraf.is