Skráð 19. sept. 2025

Ás

Jörð/LóðSuðurland/Hella-851
927,647 m2
Verð
130.000.000 kr.
Fermetraverð
140 kr./m2
Fasteignamat
1.330.000 kr.
Brunabótamat
135.650.000 kr.
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2197737
Húsgerð
Jörð/Lóð
Gluggar / Gler
-
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Upphitun
-
Inngangur
Sameiginlegur
FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. sími: 487-5028.
ÁS 1 Í ÁSAHREPPI, LANDSPILDA OG HÚS.
Um er að ræða um 14 hektara spildu úr landi jarðarinnar Ás 1 í Ásahreppi.  Landið er allt gróið og grasgefið.  Landið er allt afmarkað með skurðum og girðingum.  Eignin er í um 90 km fjalægð frá Reykjavík og bundið slitlag er alla leið heim að bæ.  Á landinu eru neðangreindar húseignir.

Íbúðarhús:
Húsið er á tveimur hæðum, byggt úr holsteini árið 1950 og klætt að utan með stálklæðningu, stærð 216,2 fm.  Neðri hæð hússins telur:  Tvö anddyri með flísum á gólfi.  Þrjú svefnherbergi með parketi á gólfum.  Eldhús með flísum á gólfi og góðri innréttingu.  Þvottahús með máluðu steingólfi.  Baðherbergi með dúk á gólfi, sturtu og innréttingu.  Af neðri hæðinni liggur tréstigi upp á þá efri, sem telur:  Anddyri með flísum á gólfi.  Baðherbergi með flísum á veggjum og gólfi, sturtu og innréttingu.  Eldhús með flísum á gólfi og vandaðri innréttingu.  Búr með flísum á gólfi.  Hol, stofu og tvö svefnherbergi með harðparketi á gólfum, skápur er í öðru herberginu.  Raflagnir í húsinu hafa nýlega verið endurnýjaðar.  Húsið er kynt með hitaveitu.  Seljandi hefur verið með gistiþjónustu á neðri hæð hússins.

Útihús:
Hesthús byggt árið 1952 úr holsteini, stærð 309 fm.  Húsið hefur verið klætt að utan með alusinkklæðningu og að innanverðu er það klætt með stáli í loft og timbri á veggjum.  Skipt hefur verið um gler og glugga.  Í húsinu eru 19 stíur, reyðtygjageymsla, kaffistofa og salerni, gangar eru steyptir.  Utan við húsið er taðþró.  Húsið er kynt með hitaveitu.

Hlaða sem er áföst hesthúsinu byggð árið 1953 úr steinsteypu, timbri og járni, stærð 122 fm.  Húsið er nýtt sem reiðskemma.

Kaupendur greiða engin umsýslugjöld:

Allar nánari upplýsingar veita:
Guðmundur Einarsson lgf, gsm: 863-9528, netfang: gudmundur@fannberg.is
Ágúst Kristjánsson lgf, gsm: 893-8877, netfang: agust@fannberg.is

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.



 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
50,800 m2
Fasteignanúmer
2197737
Húsmat
10.200.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
10.200.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Byggt 1950
21.6 m2
Fasteignanúmer
2197737
Byggingarefni
Holsteinn
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
30.050.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
30.050.000 kr.
Brunabótamat
82.400.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Byggt 1952
30.9 m2
Fasteignanúmer
2197737
Byggingarefni
Holsteinn
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
8.820.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
8.820.000 kr.
Brunabótamat
41.400.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Byggt 1953
12.2 m2
Fasteignanúmer
2197737
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
2.520.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
2.520.000 kr.
Brunabótamat
11.850.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin