Fasteignaleitin
Opið hús:08. júní kl 18:00-18:30
Skráð 2. júní 2026

Rjúpnasalir 14

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
90.5 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
67.900.000 kr.
Fermetraverð
750.276 kr./m2
Fasteignamat
74.750.000 kr.
Brunabótamat
46.300.000 kr.
Mynd af Auðun Ólafsson
Auðun Ólafsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2264002_1
Landnúmer
186960
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
St+málmur
Númer hæðar
12
Hæðir í húsi
13
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Gott
Raflagnir
Gott
Frárennslislagnir
Gott
Gluggar / Gler
Gott
Þak
Gott
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Lóð
1,57
Upphitun
Danfoss
Inngangur
Sameiginlegur
Gallar
Vantar sturtuklefa á sturtubotn.
Kvöð / kvaðir
Bílastæði í bílakjallara sem nú er skráð hjá HMS fylgir ekki með.
Rúmgóð og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á 12. hæð í góðu lyftuhúsi með rúmgóðum svölum til suðaustur. Glæsilegt útsýni er úr íbúðinni.
Sameign eintaklega snyrtileg. Næg bílastæði, búið að setja upp rafhleðslustöðvar. Samkvæmt teikningu er íbúðin 3ja herbergja en stofan er einstaklega rúmgóð eins og skipulagið er í dag.


Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 90,5 fm og þar af er geymsla 7,1 fm.

Sæktu söluyfirlit hér

Nánari lýsing:
Forstofa er rúmgóð með fataskáp.
Eldhús með L-laga innrétting með efri og neðri skápum, pláss fyrir innbyggða uppþvottavél, helluborð, gufugleypir, ofn í vinnuhæð.   Eldhús er opið við stofu og borðstofu.
Stofa/borðstofa er björt með glugga í suður og útgengi út á rúmgóðar suðaustur svalir með flísum á gólfi. Fallegt útsýni. 
Hjónaherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi. 
Baðherbergi með sturtu, góð innrétting, salerni, handklæðaofn og flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús er innan íbúðar með góðu plássi fyrir þvottavél og þurrkara. 
Geymsla íbúðarinnar er á jarðhæð hússins.                                 
Dúkur á öllum gólfum nema baðherbergi en þar eru flísar.

Hér er um að ræða frábæra staðsetningu í Salarhverfi Kópavogs með góðar almenningssamgöngur. Stutt er í helstu þjónustu og verslanir. Leik- og grunnskólar eru í göngufæri ásamt góðri íþróttaaðstöðu og sundlaug. Fallegar göngu- og hjólaleiðir  eru við fjölbýlið og golfvöllurinn við Leirdal rétt við húsið.

Tvær lyftur eru í húsinu er nýbúið að skipta um stýrikerfi í þeim. Sameign er einstaklega snyrtileg og vel umgengin.

Allar nánari upplýsingar veitir Auðun Ólasson löggiltur fasteignasali í síma 894-1976 eða á netfanginu audun@trausti.is
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (24)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Safamýri 71
Opið hús:02. júní kl 18:00-18:30
safamyri.jpg
Skoða eignina Safamýri 71
Safamýri 71
108 Reykjavík
147.2 m2
Fjölbýlishús
513
862 þ.kr./m2
126.900.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7A íb.305
Bílastæði
Opið hús:07. júní kl 13:00-14:00
Eirhöfði 7A íb.305
110 Reykjavík
110.4 m2
Fjölbýlishús
3
950 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Klukkuberg 15
Bílskúr
Opið hús:02. júní kl 17:30-18:00
Skoða eignina Klukkuberg 15
Klukkuberg 15
221 Hafnarfjörður
133.5 m2
Fjölbýlishús
413
606 þ.kr./m2
80.900.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 62
Bílastæði
Skoða eignina Naustavör 62
Naustavör 62
200 Kópavogur
153.7 m2
Fjölbýlishús
413
1073 þ.kr./m2
164.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin