Valhöll fasteignasala, Síðumúla 27, sími 588-4477 og Jónas H. Jónasson aðstoðarmaður fasteignasala, sími 842-1520 kynnir: Sætún A, Kjalarnesi, góður fjárfestingarkostur í útjarðri Reykjavíkur.
Um er að ræða 3.545 fm atvinnulóð með fasteign sem var byggð í tveimur pörtum, 1975 og 1979 sem eru saman 778 fm. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð og öll aðstaða til fyrirmyndar, tvö eldhús með salernisaðstöðu eru í byggingunni. Stór innkeyrsluhurð er á gafli hússins sem gerir aðkomu húsbíla mjög þægilega. Húsnæðið hefur verið nota sem geymsluhúsnæði en býður upp á ýmsa möguleika. Byggingarréttur er á lóðinni fyrir allt að 850 fm atvinnuhúsnæði. Fyrirhuguð Sundabraut verður rétt austan við Sætún og mun tengja svæðið við Sundahöfn og Reykjavík, áætlað er að það muni taka innan við 10 mín. að keyra frá Sundahöfn að Sætúni.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Jónas H. Jónasson löggiltur eignaskiptayfirlýsandi og
aðstoðarmaður fasteignasala í síma 842-1520 eða jonas@valholl.is
Ertu að fara selja, hafðu samband og ég mun gefa þér fast verðtilboð í söluferlið.
VALHÖLL FASTEIGNASALA SÍÐAN 1995 - FARSÆL OG ÖRUGG FASTEIGNAVIÐSKIPTI - EINGÖNGU LÖGGILTIR FASTEIGNASALAR OG LÖGFRÆÐINGAR ANNAST ÞÍN SÖLUMÁL HJÁ OKKUR. VALHÖLL ER FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKI SAMKVÆMT GREININGU CREDITINFO 2015 til 2021, EN AÐEINS 2 % FYRIRTÆKJA Á ÍSLANDI NÁÐU ÞEIM GÆÐASKILYRÐUM.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. 4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.