Skráð 10. feb. 2026

Vinastræti 10

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
126.8 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
109.900.000 kr.
Fermetraverð
866.719 kr./m2
Fasteignamat
101.250.000 kr.
Brunabótamat
68.250.000 kr.
Mynd af Björgvin Þór Rúnarsson
Björgvin Þór Rúnarsson
Fasteignasali
Byggt 2019
Þvottahús
Lyfta
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2503024
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Númer íbúðar
3
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita/gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Prima fasteignasala og Björgvin Þór Rúnarsson lgf. kynna eignina Vinastræti 10, 210 Garðabær íbúð merkta 303 og stæði merkt B46 með fastanúmer 2503024

Glæsilega íbúð með mikilli lofthæð og óheftu útsýni í Vinastæti 10, á hæsta punkti Urriðaholts.
Um er að ræða vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð sem er alls tæpir 127 fm skv. fasteignaskrá ásamt rúmgóðri geymslu. Salarhæð íbúðar er mest 3,21m en minnst 2,9m. Eigninni fylgir stæði í upphitaðri bílageymslu með hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl. Inn af anddyri er komið inn í stórt alrými með stórum gluggum sem rúmar stofu, borðstofu og opið eldhús. ásamt góðar svalir til suðurs. Eldhús er með eldunareyju og vönduðum tækjum ásamt fallegum hangandi háf. Innréttingar í eldhúsi eru af vandaðri gerð frá GKS og eru með innfelldum ísskáp og uppþvottavél. Inn af gangi eru svo þrjú rúmgóð svefnherbergi með vönduðum skápum frá GKS, baðherbergi með vönduðum flísum frá Álfaborg ásamt vandaðri innréttingu frá GKS og svo afar nett þvottahús. Húsið er hannað af Birni Ó Ólafssyni arkitekt og byggt af ÞG - Verk.

Nánari lýsing:
Anddyri: Með vönduðum og háum hvítlökkuðum skáp frá GKS. 
Stofa / Borðstofa: Opin og björt með útgengi á lerki klæddar svalir. Glæsilegt útsýni út um stóra glugga.
Eldhús: Vönduð grálökkuð innrétting frá GKS með góðum blástursofni ásamt innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Eldunareyju með helluborði og fallegum upphengdum gufuháf.
Baðherbergi: Vönduð innrétting frá GKS með veggskáp með stórum speglahurðum og skáp með vaski. Upphengt salerni og gólfsturta með glerskilrúmi. Flísar frá Álfaborg.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með miklu skápaplássi. Vandaðir háir og hvítlakkaðir skápar frá GKS.
Barnaherbergi I: Með háum og hvítlökkuðum skápum frá GKS. 
Barnaherbergi II: Rúmgott herbergi með vönduðum háum og hvítlökkuðum skápum frá GKS.
Svalir: Rúmgóðar lerki klæddar skjólsælar svalir með óheftu útsýni frá austri til vesturs.
Bílageymsla: Eigninni fylgir sérmerkt stæði í bílageymslu. Hægt er að fara með lyftu í stigahúsi niður að bílageymslu. Búið er að setja upp veggstæði fyrir bílhleðslustöðvar alsstaðar og er bílhleðslustöð þegar uppsett í stæði íbúðar.
Geymsla: Afar rúmgóð eða um 18 fm. Sem nýtist einnig sem heimarækt (sjá mynd).
Gólfefni: Vandað harðparket frá Parki á öllum gólfum eignar utan baðherbergis og þvottahúss, en þar eru flísar frá Álfaborg og gólf málað með epoxy í geymslu..
Sameign: Stigahús er hvítmálað og teppalagt með lyftu. Dyrasími með myndavél. Rafmagnsopnun í hurðum í anddyri. Hjólageymsla er í sameign. 

Við Vinastræti er Urriðaholtsskóli sem starfar á tveimur skólastigum, leik- og grunnskóla og er einnig áætlað er að opna kaffihús við götuna ásamt því að almennings sundlaug er á teikniborðinu þarna einnig. Það má því ætla að Vinastæti verði í kjarna hverfisins þegar hverfið hefur stækkað til austurs eins og ráðgert er
Húsið er klætt að utan með vönduðum álklæðningum sem tryggir lágmarks viðhald hússins. Allir klæddir útveggir í húsinu er einangraðir að utan með steinull og síðan klæddir með álklæðningu (notað álleiðara kerfi) sem er með innbrenndum lit. Þakfágangur er steinsteypt loftaplata, með tveim lögum af asfaltdúk, þar ofan á kemur Styrisol plasteingrun (eða sambærilegt) hún er hulin með Slimeline dúk (eða sambærilegt) og drenmöl. Allir gluggar og svalahurðir eru ál / tré kerfi og eru glerjaðir með K-gleri. Allar útihurðir eru úr áli í húsunum, aðalinngangshurðir í hvert hús eru með rafmagns opnun. Aðrar hurðir eru að utanverðu eru hefðbundnar álhurðir með gleri og eða spjaldi. Bílageymsluhurð er flekahurð úr lituðu stáli (áli), gönguhurð er við hlið hennar. Til opnunar á hurðinni eru notaðir fjarstýrðir opnarar af viðurkenndri gerð. Snjóbræðslur er lagðar samkvæmt teikningu hönnuðar. Afrennsli af húsunum er nýtt í snjóbræðslu.


Nánari upplýsingar veita:
Björgvin Þór Rúnarsson löggiltur fasteignasali / s.8551544 / bjorgvin@primafasteignir.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
20/04/202159.900.000 kr.74.000.000 kr.126.8 m2583.596 kr.
18/10/201951.500.000 kr.61.000.000 kr.126.8 m2481.072 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Holtsvegur 41
Opið hús:11. feb. kl 17:00-17:30
IMG_8196.JPG
Skoða eignina Holtsvegur 41
Holtsvegur 41
210 Garðabær
147.7 m2
Fjölbýlishús
423
778 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Línakur 1
Opið hús:14. feb. kl 14:00-14:30
Skoða eignina Línakur 1
Línakur 1
210 Garðabær
122 m2
Fjölbýlishús
413
899 þ.kr./m2
109.700.000 kr.
Skoða eignina Hraungata 7 (203)
Bílastæði
Hraungata 7 (203)
210 Garðabær
116.4 m2
Fjölbýlishús
312
1030 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Hraungata 7 (202)
Bílastæði
Hraungata 7 (202)
210 Garðabær
116.8 m2
Fjölbýlishús
312
1027 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin