Atvinnueign kynnir til leigu: 247 fm verslunar- og þjónusturými í Egilshöll.
Til leigu er rými í Egilshöll sem býður upp á fjölbreytta möguleika fyrir verslunar- og þjónustustarfsemi sem fellur vel að þeirri starfsemi sem fyrir er í húsinu.
VSK bætist við leiguverð. Laust eftir samkomulagi. Egilshöllin í Grafarvogi er stærsta afþreyingar- og íþróttamiðstöð á Íslandi. Húsið er um 33.000 fermetrar sem skiptist í 10.800 fermetra knattspyrnusal, 400 fermetra skólaíþróttasal, 4.000 fermetra skautahöll, 800 fermetra skotæfingasvæði, 7.700 fermetra kvikmyndahús og keiluhöll (byggt 2007) og 7.000 fermetra í ýmsa smærri sali, skrifstofu, þjónustu, og margt fleira. Árið 2015 var tekið í notkun 2.250 fermetra fimleikahús og árið 2017 var tekið í notkun 3.000 fermetra alhliða íþróttahús.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Ólafur Ingi Guðmundsson, löggiltur fasteignasali og leigumiðlari, í síma
847-7700 eða
olafur@atvinnueign.is Á vefsíðu okkar getur þú fundið fleiri eignir sem og kynnt þér þjónustu Atvinnueignar ehf,
www.atvinnueign.is - Atvinnueignir eru okkar fag –