** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Björt og vel skipulögð 159 m2, 5 herbergja endaíbúð með mjög fallegu útsýni á þriðju og efstu hæð, með bílskúr, við Björtuhlíð 9 í Mosfellsbæ. Húsið er teiknað af Kjartani Sveinsyni. Eignin er skráð 159,0 m2, þar af íbúð 131,0 m2 og bílskúr 28,0 m2.
Eignin skiptist í forstofu, skála, stofu/borðstofu, sólstofu,
eldhús, þrjú svefnherbergi, sjónvarpsherbergi, baðherbergi og þvottahús/geymslu.
Mikil lofthæð og gluggar til þriggja átta gera íbúðina bjarta og fallega. Fallegur arinn er í stofu.
Frábær staðsetning rétt við grunn- og leiksskóla, sundlaug, golfvöll og fallegar gönguleiðir.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.Nánari lýsing:Forstofa er með flísum á gólfi og góðu skápaplássi.
Skáli er inn af forstofu með parket á gólfi.
Stofa og borðstofa eru bjartar og rúmgóðar með fallegu útsýni og parketi á gólfi. Arinn er í stofu.
Sólstofa er við hlið stofu og með flísum á gólfi. Útgengt á suðursvalir með gúmmíhellum.
Eldhús er rúmgott, með parketi á gólfi, hvítri innréttingu með miklu skápaplássi og borðkrók.
Þvottahús/geymsla er inn af eldhúsi og með flísum á gólfi. Gluggi er í þvottahúsi/geymslu.
Hjónaherbergi er með parketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi 3 er með parketi á gólfi og fataskápum.
Sjónvarpsherbergi er rúmgott með parketi á gólfi. Herberginu var bætt við og því hægt að taka það niður og stækka stofuna.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með innréttingu, baðkar og sturtuklefa. Gluggi er á baðherbergi.
Bílskúr 28 m2 fylgir eigninni. Búið að leggja rafmagn fyrir hleðslustöð fyrir rafbíl. Möguleiki er á að leggja tveimur bílum fyrir framan bílskúr.
Verð kr. 91.900.000,-