Fasteignaleitin
Skráð 5. júní 2026

Lindargata 39

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
108.8 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
124.900.000 kr.
Fermetraverð
1.147.978 kr./m2
Brunabótamat
70.620.000 kr.
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
22979581
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

LANDMARK fasteignamiðlun og Sveinn Eyland, lögg. fasteignasali s: 6900 820 / sveinn@landmark.is kynna:
Um er að ræða glæsilega, bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja 108.8 fm íbúð á 9. hæð með aukinni lofthæð og gólfsíðum gluggum í eftirsóttu lyftuhúsi í Skuggahverfi 2-3 við Lindargötu 39.
Sér bílastæði í lokaðri bílgeymslu fygir með eigninni.
Mjög snyrtileg sameign og er allt til fyrirmyndar þar. Tvær lyftur eru í húseigninni. 
ÍBÚÐ GETUR VERIÐ LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.


Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúð er 95.8 fm merkt 14-09-02 og geymsla er 13 fm merkt 14-116, samtals 108.8 fm að stærð.
Stæði í bílgeymslu er merkt 16B-141


Nánari upplýsingar um eign:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@landmark.is


FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.

Eignin skiptist í:
Forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi, sérgeymslu og stæði í bílgeymslu.  
Sameiginleg hjóla/vagnageymsla í kjallara.

Nánari lýsing á eign:
Forstofa með innbyggðum fataskáp.
Stofa/borðstofa er opið bjart rými með gólfsíðum gluggum á tvo vegu og er stórglæsilegt útsýni út á sjó og til fjalla úr stofu og af svölum sem að snúa til suð-austurs, arin er í stofurými.
Eldhús er með fallegri dökkri eldhúsinnréttingu með efri og neðri skápum og er steinn í borðplötum í eldhúsi og eldunareyja sem skilur af eldhús og stofu, gott geymslupláss er í eyju, innbyggð uppþvottavél í innréttingu og veglegur ísskápur með frysti, ofn í vinnuhæð og helluborð í eyju með gufugleypi yfir.
Hjónaherbergið er rúmgott með  fataskápum með rennihurðum á heilum vegg.
Auka herbergi er innaf stofu ekki með fataskáp. 
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum alveg upp í loft,  Walk-in sturta og baðkar, falleg innrétting með skápum undir vask, steinn í borðplötu og speglaskápar á vegg, upphengt salerni og handklæðaofn.
Þvottahús með flísalögðu gólfi og góð innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara, vinnuborð með skolvask og hillur á vegg.
Íbúðinni fylgir rúmgóð 13 fm sérgeymsla með ca 3 m lofthæð í kjallara hússins.
Gólfefni: Parket og flísar á gólfum eignar. Gólhitakerfi er í íbúð.

Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í bílakjallara hússins. Búið er að tengja rafmagn fyrir rafhleðslustöð við bílastæði.
Einnig eru fjölmörg einkastæði fyrir íbúa og gesti á lóð.
Sameiginleg hjólageymsla er á 1.hæð Starfandi húsvörður fyrir Skuggahverfi  2-3 .

Glæsileg útsýnis íbúð í miðborginni, stutt í alla þjónustu, verslanir, veitingastaði og afþreyingu. 
Stutt er í stofnbrautir.

 
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@landmark.is

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
http://www.landmark.is

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Silfursmári 2
Bílastæði
Skoða eignina Silfursmári 2
Silfursmári 2
201 Kópavogur
116 m2
Fjölbýlishús
312
Fasteignamat 98.500.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Njálsgata 49
Skoða eignina Njálsgata 49
Njálsgata 49
101 Reykjavík
106.5 m2
Fjölbýlishús
312
797 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Mosagata 11
Bílastæði
Skoða eignina Mosagata 11
Mosagata 11
210 Garðabær
108 m2
Fjölbýlishús
4
879 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Lynggata 2
Bílastæði
Skoða eignina Lynggata 2
Lynggata 2
210 Garðabær
93.4 m2
Fjölbýlishús
312
845 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin