Fasteignaleitin
Skráð 28. apríl 2023

SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
168 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
93.800.000 kr.
Fermetraverð
558.333 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.spanareignir.isEignalisti
Garður
Pallur
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
718280426
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Verönd og þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ Á LA FINCA GOLFVELLINUM* *FRÁBÆR STAÐSETNING*


Vönduð og falleg einbýlishús við hinn glæsilega La Finca golfvöll, í þægilegu göngufæri frá Algorfa, skemmtilegum spænskum smábæ. Um 30 mín akstur suður af Alicante. Húsin eru á einni hæð, vel skipulögð með góðu alrými, þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Sér garður með einkasundlaug. Stór þakverönd með útsýni. Bílastæði inni á lokaðri lóð. Á sama stað er einnig mögulegt að velja hús með fjórum svefnherbergjum og þremur baðherbergjum og er þá fjórða herbergið + baðherbergi á efri hæð.

Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, adalheidur@spanareignir.is, GSM 00354 893 2495.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is, GSM 0034 615 112 869.


Nánari lýsing:
Húsið skiptist í gott eldhús, með góðri tengingu við útisvæði og stofu/borðstofu í rúmgóðu alrými.
Þrjú  svefnherbergi og tvö baðherbergi. Stærri hús eru líka í boði. Út frá stofunni er stór verönd og góður, lokaður garður með flottri aðstöðu til að njóta sólar, grilla ofl. Einkasundlaug í garðinum.

Mikið innifalið: Fullfrágenginn garður með einkasundlaug. Stór þakverönd með góðu útsýni. Rafmagnstæki í eldhúsi ásamt þvottavél. Rafknúin gluggatjöld í stofu. Hiti í gólfum á baðherbergjum. Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.

Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða. 

Verð frá 680.000 evrum + kostn. við kaupin.

Húsið er 129 fm. + 39 fm. verönd. Samtals 168 fm.
Einnig fylgir 150 fm. þakverönd.
Stórar lóðir, 460 - 715 fm.

Húsin eru vel staðsett í göngufæri við Klúbbhúsið á La Finca Golfvellinum. Gott úrval veitingastaða og verslana í litlum kjarna eru í stuttu göngufæri og Algorfa, skemmtilegur spænskur smábær með sál og sjarma er í þægilegu göngufæri. Einnig eru fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Campoamor, Las Colinas, Villamartin, Las Ramblas, Lo Romero, Roda Golf,  La Marquesa og fleiri.

Ca. 20 mín akstur er niður á ströndina. Ca. 10-20 mín akstur verslunarmiðstöðvarnar Habaneras og La Zenia Boulevard. Ennfremur er stutt að keyra í skemmtilega bæi í næsta nágrenni, t.d. Algorfa, Benijofar, San Miguel de Salinas og Ciudad Quesada.

Glæsilegt fimm stjörnu golf og spa hótel í göngufæri. Þar er hægt að njóta dekurs og borða góðan mat.
Hér er um að ræða flotta eign fyrir golfara og fólk sem kann að njóta lífsins.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því verið ca. 13%.

Eiginleikar: þakverönd, útsýni, sér garður, einkasundlaug, bílastæði, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, La Finca,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (37)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fannborgartangi 25
Bílskúr
Á einni hæð
Opið hús:14. nóv. kl 15:00-16:00
Fannborgartangi 25
846 Flúðir
151,8 m2
Raðhús
423
579 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Skoða eignina Þorsteinsgata 6
Skoða eignina Þorsteinsgata 6
Þorsteinsgata 6
310 Borgarnes
164 m2
Einbýlishús
413
500 þ.kr./m2
82.000.000 kr.
Skoða eignina Brekkuhvammur 10
Á einni hæð
Hleðslustöð
Opið hús:12. nóv. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Brekkuhvammur 10
Brekkuhvammur 10
220 Hafnarfjörður
166,5 m2
Einbýlishús
412
750 þ.kr./m2
124.900.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 47B
Skoða eignina Hjallabraut 47B
Hjallabraut 47B
220 Hafnarfjörður
159,7 m2
Raðhús
43
1058 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin