LANDMARK fasteignamiðlun og Davíð Matthíasson, lögg. fasteignasali – 898-1713 / david@landmark.is kynna:Um er að ræða glæsilega, bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 2 hæð við Fögruhlíð 7 í Hafnarfirði.Íbúðin er 80.2 m² og skiptist í forstofu, hol/gangur, stofa/borðstofa, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, svalir og geymslu.
Snyrtileg sameign og fallegur garður sameiginlegur, fyrir framan húsið eru bílastæði.
Húsið er staðsett innst í lokuðum botnlanga og opið og gróið svæði þar við hliðina.
Eignin er á fjölskylduvænum stað í Mosahlíðinni í Hafnarfirði.
Stutt er í skóla, leikskóla, íþróttar og útivistarsvæði, alla þjónustu og stofnbrautir.
FRÁBÆR FYRSTU KAUP.Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:Davíð Matthíasson, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 898-1713 /
david@landmark.isBirtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúð er 73,9 m2 merkt 01-02 og geymsla er 6,3 m2, samtals 80.2 m2 að stærð. Nánari lýsing á eign:Forstofa: Flísalögð með fallegum hvítum fataskáp.
Hol: Með harðparketi á gólfi
Stofa: Er rúmgóð og björt með harðparketi á gólfi. Úr stofu er útgengt út á suð-austur svalir.
Eldhús: Parketlagt og bjart með góðum glugga. Snyrtilegar innréttingar hvítar með viðarhöldum.
Svefnherbergi: Parketlagt með fataskáp
Hjónaerbergi: Rúmgott og parketlagt með fataskáp.
Baðherbergi: Nýlega endurnýjað. Flísar á gólfi og veggjum, falleg innrétting með speglaskáp fyrir ofan handlaug. Upphengt salerni, baðkar með sturtuhengi.
Þvottaherbergi: Innangengt af baðherbergi og er það flísalagt með góðum hillueiningum.
Geymsla: Er á 1 hæð og er 6,3 fm
Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð samkvæmt eiganda.Árið 2020 var baðherbergi og þvottahús endurnýjað, skipt um harðparket og lista. Skipt um skáp í andyri og blöndunartæki í eldhúsi.
Árið 2023 var skipt um hurðir á öllum íbúðum í stigaganginum.
Árið 2025 var skipt um gler í einum glugga í stofunni og nýjar hillueiningar í þvottahúsi.
Árið 2026 var keyptur nýr myndavéladyrasími, ný ljós á stigagangi með skynjara og öll ljós úti endurnýjuð með sólúri, nýjir fataskápar í svefnherbergjum, nýjar hurðir og höldur í forstofu. Einnig voru loftstokkar og mótor yfirfarnir, þrifnir og hluta til endurnýjað á háalofti.
StaðsetningÞetta er falleg eign á góðum stað í Setberginu í Hafnarfirði þar sem skólar og leikskólar eru í göngufæri og stutt er í náttúruna.
AfhendingEignin er tilbúin til afhendingar eftir samkomulagi.
Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Landmark fasteignamiðlun og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust.
Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. Landmark fasteignamiðlun og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.
Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat