Fasteignaleitin
Skráð 19. sept. 2026

Norður Hlíð

EinbýlishúsVesturland/Grundarfjörður-351
106.6 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
655.722 kr./m2
Fasteignamat
27.150.000 kr.
Brunabótamat
69.200.000 kr.
Mynd af Þorbjörn Geir Ólafsson
Þorbjörn Geir Ólafsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2016
Garður
Pallur
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2335832
Landnúmer
209401
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ástand ekki vitað
Raflagnir
Ástand ekki vitað
Frárennslislagnir
Ástand ekki vitað
Gluggar / Gler
Ástand ekki vitað
Þak
Ástand ekki vitað
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Verönd
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Tveir inngangar
Trausti fasteignasala og Þorbjörn Geir Ólafsson, löggiltur fasteignasali, kynna Norður-Hlíð, einstaklega fallega staðsetta eign í dreifbýli Grundarfjarðar, við rætur Eyrarfjalls. Eignin stendur í rólegu og fallegu umhverfi með stórbrotna náttúru Snæfellsness allt um kring, en jafnframt í góðri nálægð við Grundarfjörð þar sem finna má alla helstu þjónustu.

Eignin samanstendur samkvæmt opinberri skráningu af 64,6 m² einbýlishúsi, byggðu árið 2016, og 42,0 m² iðnaðarhúsi/smiðju, byggðu árið 2023, eða samtals 106,6 m² skráðu húsnæði. Húsin standa á eignarlandi, um 1 hektara að stærð, sem fylgir eigninni við sölu. Möguleiki er jafnframt á kaupum á aðliggjandi hektara lands, samkvæmt nánara samkomulagi.

Íbúðarhúsið er steinsteypt, einangrað að utan og klætt viðhaldslítilli quartz-klæðningu. Húsið virðist vel byggt og hefur verið vel við haldið. Það nýtist jafnt sem heilsárshús eða sumarhús. Raunverulegt gólfflatarmál er um 70 m², þó skráð flatarmál sé 64,6 m². Húsið skiptist í forstofu, eitt svefnherbergi, eldhús, stofu, svefnloft auk geymslu/þvottahúss. Frá húsinu er gengið út á fallega og skjólgóða steypta verönd, sem myndar notalegt útisvæði við húsið.

Við húsið stendur 42 m² vel búin smiðja/iðnaðarhús, sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika fyrir t.d. smíðar, áhugamál, geymslu eða annan rekstur. Við smiðjuna hefur jafnframt verið festur um 15 m² gámur, sem eykur geymslu- og nýtingarrými enn frekar. Gámurinn er ekki hluti af skráðum fermetrum eignarinnar.

Norður-Hlíð er áhugaverð eign fyrir þá sem sækjast eftir friðsælli staðsetningu og eigin landi, en vilja um leið hafa gott aðgengi að þjónustu í Grundarfirði. Samspil íbúðarhúss, rúmgóðrar smiðju, viðbótargeymslu og eins hektara eignarlands býður upp á fjölbreytta möguleika, hvort sem horft er til fastrar búsetu, frístundanotkunar eða aðstöðu fyrir áhugamál og vinnu.

Nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson, löggiltur fasteignasali, í síma 895-5198 eða með tölvupósti á bjossi@trausti.is.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2023
42 m2
Fasteignanúmer
2335832
Byggingarefni
Stál
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
3.800.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
3.800.000 kr.
Brunabótamat
21.350.000 kr.

Myndir (43)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hafnagata 10
Skoða eignina Hafnagata 10
Hafnagata 10
233 Reykjanesbær
111 m2
Einbýlishús
514
499 þ.kr./m2
55.400.000 kr.
Skoða eignina Arnarsíða 12b
Á einni hæð
Opið hús:05. nóv. kl 16:15-17:00
Skoða eignina Arnarsíða 12b
Arnarsíða 12b
603 Akureyri
114,7 m2
Raðhús
413
697 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Framnesvegur 22
Opið hús:04. nóv. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Framnesvegur 22
Framnesvegur 22
101 Reykjavík
90,9 m2
Raðhús
423
1055 þ.kr./m2
95.900.000 kr.
Skoða eignina Nestún 2
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Nestún 2
Nestún 2
340 Stykkishólmur
175,2 m2
Einbýlishús
413
485 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin