Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- dora@eyjaeignir.is og Eyjaeignir fasteignasala kynna í einkasölu: Áshamar 59 sem er falleg 2 herbergja íbúð í á 3. hæð í fjölbýli. Eignin er byggð úr steini árið 1978 og er 62,8 m2, þar af er geymsla í kjallara 4,2 m2. Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð að innan, má þar nefna eldhús, baðherbergi, gólfefni og rafmagn. Búið er að minnka stofuna og útbúa lítið herbergi.
Blokkin var nýlega tekin í gegn að utan, einangruð og klædd með álklæðningu. Frábær staðsetning, stutt í dalinn, golfvöllinn og Hamarskóla, glæsilegt útsýni.
BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið dora@eyjaeignir.is eða í síma 8611105Nánari Lýsing: Hol: Parket á gólfi
Eldhús: Parket á gólfi, nýleg falleg innrétting frá Ikea, nýleg tæki
Stofa: Parket á gólfi, útgengt á svalir
Baðherbergi: Flísar á gólfi, bað, innrétting, tengi fyrir þvottavél og þurrkara
Herbergi: Parket á gólfi, skápur
Herbergi: Parket á gólfi ( ekki gluggi)
Svalir: rúmgóðar svalir með frábæru útsýni
Geymsla: Geymsla með hillum er í kjallara
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Eyjaeignir fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.