BYR fasteignasala kynnir í einkasölu NORÐURLEIÐ 15, EIGNARLÓÐ í Tjarnabyggð sunnan við Selfoss. Tjarnabyggð stendur vestan við þjóðvegin í landi Kaldaðarness, sunnan við Selfoss og norðan við Eyrarbakka. í u.þ.b. 45 mínútna akstursfjarlægð frá höfuðborginni.
Smellið hér fyrir staðsetningu. Lóðin er er að hluta til gróin og stendur í útjaðri Tjarnarbyggðar í skipulagðri búgarðabyggð.
Lóðin er 11085 m² eignarlóð.Sjá í landeignaskrá landnúmer 206959:
https://geo.fasteignaskra.is/landeignaskra/206384Samkvæmt skipulagi er heimilt að byggja íbúðarhúsnæði allt að 1000 m² að brúttófleti auk þeirra úthúsa sem fylgja starfsemi sem fram fer á lóðinni, en skulu úthús og íbúðarhús þó aldrei vera stærri en 1500 m² samtals að brúttófleti.
Víðtækar heimildir eru til húsdýrahalds, ræktunar og léttrar atvinnustarfsemi. Heimili, skemma, gróðurhús og hesthús á einum stað.
Fyrirliggjandi er byggingarleyfi fyrir 480 m² stálgrindarhús á lóðinni 2x 240 m². Teikningar af stálgrindarhúsi, iðnaðarbil fylgja með.
Byggingarleyfi hefur verið greitt.
Vatn og rafmagn er við lóðarmörk.
Vinnuskúr á lóðinni fylgir ekki með. Tjarnabyggð er heilsárs búgarðabyggð í 4km fjarlægð frá Selfossi. Lóðirnar eru á 600ha landsvæði, þær eru 6 saman í klasa. Á milli klasa liggja breiðar göngu- og reiðleiðir til afnota fyrir lóðareigendur.
Árborg og viðkomandi veitur munu sjá um allan rekstur svæðisins t.d. snjómokstur, sorphirðu, skólaakstur og tæmingu rotþróa, heitt og kalt vatn, lýsingu og fjarskipti.
Í Tjarnarbyggð er heimiluð ýmis atvinnustarfsemi tengd landbúnaði í samræmi við aðalskipulag Árborgar. Er þar nefnt sem dæmi ýmiskonar dýrahald og ræktun, nokkurskonar frístundabúskapur með takmörkunuðum fjölda húsdýra, bænda eða búgarðagisting. Einnig er þar nefnd útleiga gróðurreita fyrir matjurta- eða skólagarða, tamningar, reiðskólar, ýmis fræðslustarfsemi og námskeiðahald um ræktun, náttúru, gróður, meðferð og umönnun dýra.
Stutt er í sundlaugar, verslanir, sjúkrahús, golfvellir og víða í nágrenninu er hægt að komast í sportveiði.