Laus í langtímaleigu. Fjögurra herbergja íbúð með sérinngangi, verönd og bílastæði í bílakjallara.Langtímaleiga eitt til þrjú ár í senn. Hrein vanskilaskrá skilyrði, meðmæli frá fyrri leigusala ef við á.
Áhugasamir senda tölvupóst á hannes@fastlind.is með upplýsingum um sig.
Leiguverð 430.000 kr á mánuði með öllu.Fjögurra herbergja íbúð með sérinngangi sér timburverönd til suðurs ásamt bílastæði í bílakjallara.
Þrjú rúmgóð svefnherbergi, sér þvottahús.Forstofa: Flísalögð með skápum.
Eldhús: Eikarinnrétting með nýlegum tækjum og vask ásamt svörtum búrskáp.
Stofa: Parketlögð og björt stofa með útgengi út á timburverönd til suðurs.
Svefnherbergi: Þrjú rúmgóð parketlögð svefnherbergi með skápum.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með eikarinnréttingu og baðkari með sturtuaðstöðu.
Þvottahús: Flísalagt sér þvottahús.
Bílakjallari: Sérmerkt bílastæði á besta stað í bílakjallara. Ásamt sameiginlegu þvottastæði.
Geymsla: Sér geymsla í sameign ásamt sameiginlegri hjóla og vagna geymslu.